Björt framtíð að hverfa, Framsókn græðir ekkert á haftamálum og Píratar enn langstærstir

14097534298_f246440b68_z.jpg
Auglýsing

Björt fram­tíð næði ekki inn manni á þing ef þing­kosn­ingar færu fram í dag, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 8,5 pró­sent fylgi þrátt fyrir að áætlun um losun hafta og það fjár­hags­lega svig­rúm sem hún á að skapa hafi verið kynnt og Píratar bæta og bæta við sig fylgi. Þetta kemur fram í nýrri könnun Frétta­blaðs­ins sem gerð var dag­anna 15. og 16. júní. Um er að ræða fyrstu könn­un­ina sem gerð er eftir að umfangs­mikil áætlun stjórn­valda um losun hafta var kynnt og sam­komu­lag við kröfu­hafa var gert í byrjun þessa mán­að­ar.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir tölu­vert við sig sam­kvæmt könn­un­inni og fengi 29,5 pró­sent atkvæða, sem er meira en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum (26,7 pró­sent). Þetta myndi skila Sjálf­stæð­is­flokknum einum við­bóta­þing­manni og hann myndi því fá 20 slika ef kosið yrði í dag. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem leiðir rík­is­stjórn­ina, heldur hins vegar áfram að tapa fylgi. Nú mælist það ein­ungis 8,5 pró­sent sem myndi skila flokknum fimm þing­mönn­um. Í kosn­ing­unum í apríl 2013 fékk flokk­ur­inn 24,4 pró­sent og 19 þing­menn. Sá mikli kosn­inga­sigur skil­aði því að for­maður flokks­ins, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, varð for­sæt­is­ráð­herra.

Píratar hafa verið á miklu flugi það sem af er ári og fylg­is­aukn­ing þeirra virð­ist engan enda ætla að taka. Í könnun Frétta­blaðs­ins mælist fylgið 37,5 pró­sent, sem er það mesta sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni mælst með. Þessi nið­ur­staða myndi skila Pírötum 26 þing­mönnum og flokk­ur­inn yrði sá langstærsti á Alþingi og sá eini sem gæti myndað tveggja flokka stjórn.

Auglýsing


Á sama tíma og Píratar hafa verið á fleygi­ferð hefur fylgi Bjartrar fram­tíðar verið í frjálsu falli. Flokk­ur­inn sem mæld­ist oft á tíðum næst stærsti flokkur lands­ins í fyrra­haust mælist nú með 3,3 pró­sent fylgi og næði ekki inn þing­manni.

Hvorki Sam­fylk­ingin né Vinstri grænir virð­ast höfða til kjós­enda um þessar mund­ir. Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mælist ell­efu pró­sent, sem er undir kjör­fylgi flokks­ins, en Sam­fylk­ingin beið einn stærsta kosn­inga­ó­sigur sög­unnar í apríl 2013 þegar flokk­ur­inn fékk 12,85 pró­sent atkvæða. Vinstri græn, sem eiga vin­sælasta stjórn­mála­mann lands­ins í for­mann­inum Katrínu Jak­obs­dótt­ur, myndu ein­ungis fá 7,3 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag. Það myndi skila flokknum fimm þing­mönn­um. Vinstri grænir fengu 10,87 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum vorið 2013.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None