Félagar í Blaðamannafélagi Íslands og félagar í Félagi fréttamanna, sem er stéttarfélag fréttamanna á RÚV, hafa samþykkt að sameina félögin undir merkjum Blaðamannafélags Íslands. Þetta kemur fram í sameiginlegri fréttatilkynningu frá BÍ og FF. Félagsmenn hins nýja félags verða um 600 talsins en í BÍ voru um 550 félagar og í FF voru á sjötta tug félaga.
Með sameiningunni verður stétt blaða- og fréttamanna á Íslandi sameinuð í einu félagi en sameiningin mun taka gildi 1. júní. Sameiningin var samþykkt á aðalfundi BÍ 28. Apríl og á aðalfundi FF í gærkvöldi.
„Á undanförnum árum hefur verið sótt að faglegri blaða- og fréttamennsku á Íslandi í síauknum mæli,“ er haft eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur, formanns FF, í áðurnefndri tilkynningu. „Blaða- og fréttamenn þurfa að þétta raðirnar og standa saman gegn þeim ógnum sem steðja að stéttinni. Með sameiningu Félags fréttamanna og Blaðamannafélags Íslands verða til öflug heildarsamtök blaða- og fréttamanna á Íslandi, sem tala máli okkar allra og berjast fyrir sameiginlegum hagsmunum og bættum starfskjörum stéttarinnar.“
Undir þetta tekur Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður BÍ. „Sameining stéttarinnar í eitt öflugt fag- og stéttarfélag sendir sterk skilaboð út í samfélagið um mikilvægi faglegrar blaðamennsku á tímum þar sem sótt er að blaðamennsku og fjölmiðlum, hér sem annars staðar.“
Haft er eftir Sigríði að fram undan séu stór verkefni á miklum umbreytingartímum þar sem mikilvægt sé að blaðamenn snúi bökum saman til að styrkja stoðir blaðamennsku og berjast fyrir hagsmunum stéttarinnar. Öflugt, sameinað félag blaðamanna verður mikilvægur vettvangur fyrir faglegt starf og mun vinna að því að skapa grundvöll fyrir sterka, sjálfstæða fjölmiðla í rekstrarumhverfi sem er meira krefjandi en nokkru sinni,“ segir hún.