Blaða- og fréttamenn í eina sæng

Á aðalfundi Félags fréttamanna í gær var sameining félagsins við Blaðamannafélag Íslands samþykkt en aðalfundur BÍ samþykkti sameininguna í apríl.

Fjölmiðlar
Auglýsing

Félagar í Blaða­manna­fé­lagi Íslands og félagar í Félagi frétta­manna, sem er stétt­ar­fé­lag frétta­manna á RÚV, hafa sam­þykkt að sam­eina félögin undir merkjum Blaða­manna­fé­lags Íslands. Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri frétta­til­kynn­ingu frá BÍ og FF. Félags­menn hins nýja félags verða um 600 tals­ins en í BÍ voru um 550 félagar og í FF voru á sjötta tug félaga.

Með sam­ein­ing­unni verður stétt blaða- og frétta­manna á Íslandi sam­einuð í einu félagi en sam­ein­ingin mun taka gildi 1. júní. Sam­ein­ingin var sam­þykkt á aðal­fundi BÍ 28. Apríl og á aðal­fundi FF í gær­kvöldi.

„Á und­an­förnum árum hefur verið sótt að fag­legri blaða- og frétta­mennsku á Íslandi í síauknum mæli,“ er haft eftir Sig­ríði Haga­lín Björns­dótt­ur, for­manns FF, í áður­nefndri til­kynn­ingu. „Blaða- og frétta­menn þurfa að þétta rað­irnar og standa saman gegn þeim ógnum sem steðja að stétt­inni. Með sam­ein­ingu Félags frétta­manna og Blaða­manna­fé­lags Íslands verða til öflug heild­ar­sam­tök blaða- og frétta­manna á Íslandi, sem tala máli okkar allra og berj­ast fyrir sam­eig­in­legum hags­munum og bættum starfs­kjörum stétt­ar­inn­ar.“

Auglýsing

Undir þetta tekur Sig­ríður Dögg Auð­uns­dótt­ir, for­maður BÍ. „Sam­ein­ing stétt­ar­innar í eitt öfl­ugt fag- og stétt­ar­fé­lag sendir sterk skila­boð út í sam­fé­lagið um mik­il­vægi fag­legrar blaða­mennsku á tímum þar sem sótt er að blaða­mennsku og fjöl­miðl­um, hér sem ann­ars stað­ar.“

Haft er eftir Sig­ríði að fram undan séu stór verk­efni á miklum umbreyt­ing­ar­tímum þar sem mik­il­vægt sé að blaða­menn snúi bökum saman til að styrkja stoðir blaða­mennsku og berj­ast fyrir hags­munum stétt­ar­inn­ar. Öfl­ugt, sam­einað félag blaða­manna verður mik­il­vægur vett­vangur fyrir fag­legt starf og mun vinna að því að skapa grund­völl fyrir sterka, sjálf­stæða fjöl­miðla í rekstr­ar­um­hverfi sem er meira krefj­andi en nokkru sinn­i,“ segir hún.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent