Kristín Soffía Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Icelandic Startups. Kristín tekur við af Salóme Guðmundsdóttur sem lætur af störfum í júní.
Kristín Soffía hefur verið borgarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjavík frá árinu 2014 en hún var áður varaborgarfulltrúi, á árunum 2010 til 2014. Hún hefur verið stjórnarformaður Faxaflóahafna frá árinu 2014 en á auk þess sæti í Forsætisnefnd, Umhverfis- og heilbrigðisráði sem og í íbúaráði Laugardals. Þá er Kristín einnig varamaður í stjórn Strætó Bs. Hún er með BS próf í umhverfisverkfræði.
„Nýsköpun hefur sjaldan verið mikilvægari en í dag. Öflugt nýsköpunarstarf mun skapa störf, leysa þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í umhverfismálum og bæta lífsgæði hér á landi. Ég er þakklát fyrir að fá að leiða félagið á þessum spennandi tímum og hlakka til þess að leggja mitt af mörkum til að styðja enn frekar við nýsköpun hér á landi,“ er haft eftir Kristínu Soffíu í tilkynningu vegna ráðningarinnar.
Icelandic Startups er í eigu Origo, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Samtaka iðnaðarins og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Icelandic Startups veitir frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum á Íslandi stuðning, en félagið stendur meðal annars að viðskiptahraðlinum Startup Supernova sem er stökkpallur fyrir sprotafyrirtæki. Þá skipuleggur Icelandic Startups nýsköpunarverkefnin Gulleggið, Til sjávar og sveita, Startup orkidea, Snjallræði, Hringiðu og Firestarter.