Borgarfulltrúi ráðinn framkvæmdastjóri Icelandic Startups

Kristín Soffía Jónsdóttir hefur verið borgarfulltrúi í Reykjavík frá árinu 2014 en tekur nú við starfi framkvæmdastjóra Icelandic Startups.

Kristin Soffía Jónsdóttir (Mynd - Silla Pals).jpg
Auglýsing

Kristín Soffía Jóns­dóttir hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri Icelandic Startups. Kristín tekur við af Salóme Guð­munds­dóttur sem lætur af störfum í júní.

Kristín Soffía hefur verið borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík frá árinu 2014 en hún var áður vara­borg­ar­full­trúi, á árunum 2010 til 2014. Hún hefur verið stjórn­ar­for­maður Faxa­flóa­hafna frá árinu 2014 en á auk þess sæti í For­sætis­nefnd, Umhverf­is- og heil­brigð­is­ráði sem og í íbúa­ráði Laug­ar­dals. Þá er Kristín einnig vara­maður í stjórn Strætó Bs. Hún er með BS próf í umhverf­is­verk­fræði.

Auglýsing

„Ný­sköpun hefur sjaldan verið mik­il­væg­ari en í dag. Öfl­ugt nýsköp­un­ar­starf mun skapa störf, leysa þær áskor­anir sem við stöndum frammi fyrir í umhverf­is­málum og bæta lífs­gæði hér á landi. Ég er þakk­lát fyrir að fá að leiða félagið á þessum spenn­andi tímum og hlakka til þess að leggja mitt af mörkum til að styðja enn frekar við nýsköpun hér á land­i,“ er haft eftir Krist­ínu Soffíu í til­kynn­ingu vegna ráðn­ing­ar­inn­ar.

Icelandic Startups er í eigu Origo, Háskóla Íslands, Háskól­ans í Reykja­vík, Sam­taka iðn­að­ar­ins og Nýsköp­un­ar­sjóðs atvinnu­lífs­ins. Icelandic Startups veitir frum­kvöðlum og sprota­fyr­ir­tækjum á Íslandi stuðn­ing, en félagið stendur meðal ann­ars að við­skipta­hraðl­inum Startup Supernova sem er stökk­pallur fyrir sprota­fyr­ir­tæki. Þá skipu­leggur Icelandic Startups nýsköp­un­ar­verk­efnin Gul­legg­ið, Til sjávar og sveita, Startup orkidea, Snjall­ræði, Hring­iðu og Firestart­er.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent