Borgarstjóri vonar að ummæli forsætisráðherra um spítala séu aprílgabb

15375274104-95086a17fb-z.jpg
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði í seinni fréttum RÚV í gær­kvöldi að hann teldi ástæðu til að kanna hvort skyn­sam­legt væri að reisa nýjan Land­spít­ala á lóð Rík­is­út­varps­ins. Skoða ætti hvort skyn­sam­legt væri að selja fast­eignir spít­al­ans og „ná þannig inn jafn­vel tugum millj­arða strax sem hægt væri að nota til þessa að setja upp­bygg­ingu nýs spít­ala alveg á fullt á nýjum stað,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann við RÚV í gær. 

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri segir á Face­book-­síðu sinn í dag að hann voni að ummæli for­sæt­is­ráð­herra séu gabb og að honum hafi tek­ist að láta fjöl­miðla hlaupa apr­íl. „Við skulum vona að þetta sé gabb, og að heil­brigð­is- og fjár­mála­ráð­herra séu að fylgja eftir ein­róma sam­þykkt Alþingis (þmt for­sæt­is­ráð­herra) um að hefja þegar bygg­ingu Land­spít­ala við Hring­braut - sem raunar tæp­lega millj­arður rennur til á þessu ári. Bygg­ing spít­al­ans er löngu tíma­bær og þjóð­ar­skömm hvernig komið er í hús­næð­is­málum þessa hjarta í heil­brigð­is­kerfi lands­manna allra,“ segir Dagur á Face­book.

Á að selja spít­al­ann og breyta í hót­el?



Hann segir að frum­for­senda Sig­mundar Dav­íðs, um að græða á sölu lóða til að fjár­magna spít­al­ann stand­ist ekki. „Borgin á lóð­irnar við Hring­braut en ekki ríkið og hefur látið þær end­ur­gjalds­laust af hendi til spít­ala­bygg­ingar skv lögum um heil­brigð­is­þjón­ustu og samningi frá 1975. Borgin end­ur­heimtir þær ef þarna á ekki að vera spít­ali. Þá stendur eftir hug­myndin um að selja Barna­spít­al­ann, Kvenna­deild­ina og Geð­deild­ina og breyta í hót­el.“

Sig­mundur Davíð sagði í gær að margar for­sendur fyrir stað­ar­vali spít­al­ans við Hring­braut hefðu breyst á síð­ustu miss­erum, ekki síst fast­eigna­mark­að­ur­inn, þar sem verð hafi rokið upp í nágrenni spít­al­ans. „Það auð­vitað breytir for­sendum tölu­vert. Og menn ættu að minnsta kosti að skoða það, það er þess virði að reikna, þó ekki væri nema á serví­ettu hvort það gæti verið skyn­sam­legt í stöð­unni núna að selja bara fast­eignir Land­spít­al­ans við Hring­braut og lóð­irnar og bygg­inga­rétt­inn þarna í kring.“

Auglýsing

Hann ræddi sér­stak­lega um áformin um að selja lóð Rík­is­út­varps­ins og jafn­vel hús þess, „það hefur verið bent á að það gæti verið mjög hentug stað­setn­ing fyrir Land­spít­ala og um leið væri hægt að leysa úr vanda RÚV sem gæti t.d. farið í grennd við mið­bæ­inn,“ sagði hann.









Mér sýn­ist margt benda til að hér hafi okkar spaug­sama for­sæt­is­ráð­herra tek­ist að láta Eyj­una (og ein­hverja aðra fjöl­mið...

Posted by Dagur B. Egg­erts­son on Thurs­day, April 2, 2015





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None