Knattspyrnugoðsögnin Pele liggur EKKI á gjörgæslu

pel---1.jpg
Auglýsing

Knatt­spyrnu­mað­ur­inn fyrr­ver­andi Edson Arantes do Nasci­mento, betur þekktur sem Pelé, var í dag færður á gjör­gæslu­deild sjúkra­húss í Sao Paulo, en hann var lagður inn á sjúkra­húsið fyrir þrem­ur ­dögum vegna þvag­færa­sýk­ing­ar. Heilsu hans hefur hrakað mikið síð­an, og því var hann færður til sér­stakrar aðhlynn­ingar á gjör­gæslu. Frétta­stofa AFP greinir frá mál­inu.

Pelé gekkst undir aðgerð fyrir tæpum tveimur vik­um, þegar nýrna­steinar voru fjar­lægðir úr hon­um, en hann er 74 ára gam­all. Hann var útskrif­aður tveimur dögum síð­ar. Að sögn lækn­is, á The Albert Ein­stein heil­brigð­is­stofn­un­inni í Bras­il­íu, er á­stand knatt­spyrnu­goð­sagn­ar­innar stöðugt. Honum eru nú gefin sýkla­lyf í æð. „Til að veita honum bestu mögu­legu með­höndl­un, var tekin ákvörðun um að færa hann yfir á gjör­gæslu­deild“ er haft eftir lækn­in­um. Engar upp­lýs­ingar fást upp­gefnar um hvenær Pele verður mögu­lega útskrif­aður af sjúkra­hús­inu.

Pele er af mörgum tal­inn einn besti knatt­spyrnu­maður heims fyrr og síð­ar, fyrir afrek sín með brasil­íska lands­lið­inu, sem og knatt­spyrnu­feril sinn þar sem hann skor­aði hátt í þrettán hund­ruð mörk í tæp­lega fjórtán hund­ruð leikj­um. Hann skor­aði 77 mörk í 91 leik fyrir brasil­íska lands­liðið og varð heims­meist­ari með lið­inu í fyrsta skiptið árið 1958, þá sautján ára gam­all. Hann skor­aði tví­vegis í úrslita­leiknum gegn gest­gjöf­unum Sví­um.

Auglýsing

ATH! UPP­FÆRT kl. 19:26



Eins og kemur fram hér að ofan byggði Kjarn­inn frétt sína á frétt AFP. Fjöl­miðlar segja nú að tals­maður Pelé að ástand knatt­spyrnu­hetj­unnar sé ekki eins slæmt og ensku­mæl­andi fjöl­miðar hafi gefið til kynna. Svo virð­ist sem að þýð­ing á heiti sjúkra­deild­ar­innar sem Pelé dvelst nú á, hafi eitt­hvað mis­farist í fjöl­miðl­um. Það sé alls ekki gjör­gæslu­deild, heldur sé hann undir sér­stakri gæslu á sam­nefndri deild. Þá er haft eftir tals­manni Pelé að hann hafi fyrst og fremst verið fluttur á sjúkra­hús til að forð­ast ónæði, þar sem afar margir hafi viljað heim­sækja knatt­spyrnu­goð­sögn­ina.

Þá hefur frétta­stofa Reuters greint frá því að tals­maður sjúkra­húss­ins hafi borið til baka fréttir þess eðlis að Pelé sé á gjör­gæslu.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None