Bryndís Hlöðversdóttir skipuð ríkissáttarsemjari

Bryndis-Hlodversdottir.jpg
Auglýsing

Bryn­dís Hlöðvers­dótt­ir, fyrrum alþing­is­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, fyrrum rektor Bif­rast­ar­há­skóla og núver­andi starfs­manna­stjóri Lands­spít­al­ans, hefur verið skipuð í emb­ætti rík­is­sátt­ar­semj­ara til fimm ára af Eygló Harð­ar­dótt­ur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra. Bryn­dís tekur við emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara 1. júní næst­kom­andi af Magn­úsi Pét­urs­syni sem gegnt hefur emb­ætt­inu frá árinu 2008.

Bryn­dís var önnur þeirra tveggja umsækj­enda sem taldir voru hæf­astir til að gegna emb­ætt­inu að áliti sér­stakrar nefndar sem ráð­herra skip­aði til að leggja mat á hæfni umsækj­enda.

Í nið­ur­stöðu hæfn­is­nefndar segir að helstu styrk­leikar Bryn­dísar séu reynsla hennar af störfum þar sem reynt hefur á leið­toga­hæfi­leika henn­ar, auk þekk­ingar hennar á kjara­samn­ings­um­hverf­inu í störfum sínum sem lög­fræð­ingur Alþýðu­sam­bands Íslands: „Jafn­framt er ljóst að Bryn­dís hefur notið trausts í störfum sínum þar sem henni hefur meðal ann­ars verið falið að gegna störfum sem þing­flokks­for­maður og falin seta í stjórnum fyr­ir­tækja. Þá mun án efa reynsla hennar af þátt­töku í stjórn­málum geta nýst henni í starfi sem rík­is­sátta­semj­ari. Nefndin metur Bryn­dísi mjög vel hæfa til að gegna emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara“ segir í áliti hæfn­is­nefnd­ar­innar sem skipuð var Hönnu Sig­ríði Gunn­steins­dótt­ur, skrif­stofu­stjóra í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu, Magn­úsi M. Norð­dal full­trúa sam­taka launa­fólks og Hrafn­hildi Stef­áns­dóttur full­trúa sam­taka atvinnu­rek­enda. Í nið­ur­stöðu hennar segir enn fremur að þótt nefndin telji tvo umsækj­enda um emb­ættið mjög vel hæfa til að gegna því gefi fjöl­breytt­ari reynsla Bryn­dísar henni ákveðið for­skot til að gegna emb­ætt­inu.

Auglýsing

Bryn­dís Hlöðvers­dóttir er lög­fræð­ingur að mennt. Hún starf­aði hjá Alþýðu­sam­bandi Íslands 1992-1995, var þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar 1995-2005, deild­ar­for­seti laga­deildar Háskól­ans á Bif­röst 2005-2011, aðstoð­ar­rektor skól­ans frá 2006 og rektor 2011-2013. Frá árinu 2013 hefur Bryn­dís verið starfs­manna­stjóri Land­spít­al­ans.

Auk fram­an­tal­inna starfa hefur Bryn­dís setið í stjórnum Lands­virkj­un­ar, Orku­veitu Reykja­vík­ur, Eignasels, eigna­um­sýslu­fé­lags nýja Kaup­þings og Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna. Á árunum 2010-2013 var hún vara­maður í Félags­dómi, til­nefnd af Alþýðu­sam­bandi Íslands.

Alls sóttu átta um starfið þeir eru:



  • Bryn­dís Hlöðvers­dóttir


  • Dagný Rut Har­alds­dóttir


  • Erna Ein­ars­dóttir


  • Guð­jón Helgi Egils­son


  • Guð­mundur Hall­dórs­son


  • Kol­brún Ásta Bjarna­dóttir


  • Þor­steinn Þor­steins­son


  • Þórólfur Geir Matth­í­as­son




Eygló Harð­ar­dótt­ir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra skip­að­i ­þriggja manna nefnd til að meta hæfni umsækj­enda. Í þeirri nefnd sátu:



  • Hanna Sig­ríður Gunn­steins­dótt­ir, lög­fræð­ingur


  • Magnús M. Norð­da­hl, lög­fræð­ingur


  • Hrafn­hildur Stef­áns­dótt­ir, lög­fræð­ingur




Böðvar Héð­ins­son, stað­geng­ill skrif­stofu­stjóra í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu, starf­aði með nefnd­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None