Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur tekið þá ákvörðun að þiggja sæti á lista flokksins en hann hafði áður gefið það út að hann væri hættur. Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu hans í dag.
Lenti hann í fimmta sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík 5. júní síðastliðinn en stefndi á annað sætið.
„Eftir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík taldi ég rétt að kveðja stjórnmálin. Niðurstaðan var vonbrigði fyrir mig enda talsvert frá markmiðum mínum. Þessi ákvörðun féll í grýttan jarðveg hjá mörgum flokksmönnum og var lagt nokkuð hart að mér að endurskoða þessa ákvörðun. Ég féllst á að íhuga það,“ skrifar hann á Facebook.
„Þurfum kjark og þor í stað þess að berast með straumnum“
„Mér var bent á af sérfræðingum í eðli prófkjara og Kremlarlógíu flokksins að niðurstaða prófkjörsins hafi verið í raun verið góð fyrir mig. Að lokum náðist að sannfæra mig um að ég hafi verið sigurvegari prófkjörsins, eiginlega stórsigur
Eftir að hafa legið undir feldi á þriðju viku, kófsveittur og illa lyktandi hef ég ákveðið að þiggja sæti á listanum, ef það stendur þá enn til boða. Ég er sannfærður um að stefna flokksins sé góð fyrir land og þjóð. Ég tel að ég geti orðið að liði í komandi kosningabaráttu og er sannfærður um að sterkur og breiður Sjálfstæðisflokkur er mikilvægur svo að okkur vegni vel, meira nú en oft áður.
Í Sjálfstæðisflokknum eru margar vistarverur og við erum ólík. En við eigum sameiginlegar hugsjónir sem birtast í grunnstefnu flokksins. Við þurfum hins vegar að berjast fyrir stefnunni og hugsjónunum. Þurfum kjark og þor í stað þess að berast með straumnum, sem á það til að fara í misgóðan farveg, öllum til tjóns,“ skrifar hann.
Eftir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík taldi ég rétt að kveðja stjórnmálin. Niðurstaðan var vonbrigði fyrir mig...
Posted by Brynjar Níelsson on Thursday, June 24, 2021