Brynjari snýst hugur – og býður fram krafta sína fyrir næstu kosningar

„Eftir að hafa legið undir feldi á þriðju viku, kófsveittur og illa lyktandi hef ég ákveðið að þiggja sæti á listanum, ef það stendur þá enn til boða,“ segir þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Auglýsing

Brynjar Níels­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur tekið þá ákvörðun að þiggja sæti á lista flokks­ins en hann hafði áður gefið það út að hann væri hætt­ur. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Face­book-­síðu hans í dag.

Lenti hann í fimmta sæti í próf­kjöri flokks­ins í Reykja­vík 5. júní síð­ast­lið­inn en stefndi á annað sæt­ið.

„Eftir próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík taldi ég rétt að kveðja stjórn­mál­in. Nið­ur­staðan var von­brigði fyrir mig enda tals­vert frá mark­miðum mín­um. Þessi ákvörðun féll í grýttan jarð­veg hjá mörgum flokks­mönnum og var lagt nokkuð hart að mér að end­ur­skoða þessa ákvörð­un. Ég féllst á að íhuga það,“ skrifar hann á Face­book.

Auglýsing

„Þurfum kjark og þor í stað þess að ber­ast með straumn­um“

„Mér var bent á af sér­fræð­ingum í eðli próf­kjara og Kreml­ar­lógíu flokks­ins að nið­ur­staða próf­kjörs­ins hafi verið í raun verið góð fyrir mig. Að lokum náð­ist að sann­færa mig um að ég hafi verið sig­ur­veg­ari próf­kjörs­ins, eig­in­lega stór­sigur

Eftir að hafa legið undir feldi á þriðju viku, kóf­sveittur og illa lykt­andi hef ég ákveðið að þiggja sæti á list­an­um, ef það stendur þá enn til boða. Ég er sann­færður um að stefna flokks­ins sé góð fyrir land og þjóð. Ég tel að ég geti orðið að liði í kom­andi kosn­inga­bar­áttu og er sann­færður um að sterkur og breiður Sjálf­stæð­is­flokkur er mik­il­vægur svo að okkur vegni vel, meira nú en oft áður.

Í Sjálf­stæð­is­flokknum eru margar vist­ar­verur og við erum ólík. En við eigum sam­eig­in­legar hug­sjónir sem birt­ast í grunn­stefnu flokks­ins. Við þurfum hins vegar að berj­ast fyrir stefn­unni og hug­sjón­un­um. Þurfum kjark og þor í stað þess að ber­ast með straumn­um, sem á það til að fara í mis­góðan far­veg, öllum til tjóns,“ skrifar hann.

Eftir próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík taldi ég rétt að kveðja stjórn­mál­in. Nið­ur­staðan var von­brigði fyrir mig...

Posted by Brynjar Níels­son on Thurs­day, June 24, 2021

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent