Byggðastofnun um Rússabannið: Tekjutap starfsfólks allt að 2,5 milljarðar á ári

15809575118_986cb22779_b.jpg
Auglýsing

Byggða­stofnun gerir ráð fyrir að tekju­tap sjó­manna og land­verka­fólks vegna inn­flutn­ings­banns Rúss­lands á vörur frá Íslandi geti sam­tals verið á bil­inu 990 millj­ónir til 2.550 millj­ónir á heilu ár. Tekju­tap sjó­manna er áætlað 440 til 1.000 millj­ónir en talið er að 400 sjó­menn verði fyrir tekju­tapi. Tekju­tap land­verka­fólks við fryst­ingu er talið geta verið á bil­inu frá 860 til 1.870 millj­óna króna en talið er að 780 manns verði fyrir tekju­tapi.

Frá þessu er greint á vef Skessu­horns og vísar fjöl­mið­ill­inn til til­kynn­ingar frá Byggða­stofn­un. ­Sam­tals verða 1.180 sjó­menn og land­verka­fólk fyrir tekju­tapi á bil­inu 1.300 til 2.900, sam­kvæmt mati stofn­un­ar­inn­ar, en á móti kemur að vegna auk­innar bræðslu þarf 220 fleiri starfs­menn til starfa í bræðsl­un­um. Laun til þeirra starfs­manna eru áætluð á bil­inu frá 310 til 350 millj­ónir króna.

Það var Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, sem fól Byggða­stofnun að meta áhrif Rússa­banns­ins á byggða­lög, í kjöl­far setn­ingu við­skipta­banns Rússa á Ísland í fyrri hluta síð­asta mán­að­ar. Bannið hefur mikil áhrif á útgerðir lands­ins en Rússar hafa verið stærsti kaup­andi upp­sjáv­ar­afla íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja.

Auglýsing

Tekju­tap sveit­ar­sjóða vegna lægri útsvars­tekna er áætlað á bil­inu 143 til 364 millj­ónir króna og tekju­tap vegna lægri afla­gjalda er áætlað allt að 43 millj­ón­ir.

Í til­kynn­ing­unni frá Byggða­stofnun segir að almennt geri fyr­ir­tæki ekki ráð fyrir að segja upp starfs­fólki en hins veg­ar, að óbreyttu, muni ekki koma til ráðn­inga vegna vakta­vinnu við fryst­ingu mak­ríls og loðnu.

Lægri tölur en ótt­ast var í fyrstu



Fjallað er um skýrslu Byggða­stofn­unar í Morg­un­blað­inu í dag. Haft er eftir Sig­urði Inga að skýrslan sýni lægri tölur en menn hafi ótt­ast í upp­hafi, en þó sé þetta alvar­legt fyrir þá ein­stak­linga og byggða­lög sem verða fyrir mestum áhrifum af við­skipta­bann­inu.

Hann segir það ekki hafa verið rætt innan rík­is­stjórn­ar­innar hvort komið verði til móts við þau byggð­ar­lög sem nefnd eru í skýrsl­unni, en segir sjálf­sagt að það verði gert, gangi verstu spárnar eft­ir.



Í umfjöllun Morg­un­blaðs­ins kemur fram að þau byggða­lög sem verða fyrir mestum áhrifum banns­ins séu Þórs­höfn, Rauf­ar­höfn, Vopna­fjörð­ur, Nes­kaup­stað­ur, Eski­fjörð­ur, Fáskrúðs­fjörð­ur, Höfn, Vest­manna­eyj­ar, Snæ­fells­bær og Garð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None