Byko telur ákvörðun Samkeppniseftirlitsins vart lögmæta og hefur kært hana

byko-1.jpg
Auglýsing

Byko, sem í morgun var gert að greiða 650 millj­ónir króna í stjórn­valds­sekt vegna sam­keppn­islaga­brota, telur ákvörð­un­ina vart geta verið lög­mæta og hefur þegar tekið ákvörðun um að kæra hana til áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Byko.

Þar segir að nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sé í beinni and­stöðu við nýfall­inn dóm fjöl­skip­aðs Hér­aðs­dóms Reykja­ness, þar sem ell­efu af tólf sak­born­ingum í sama máli voru sýkn­að­ir. "Dóm­ur­inn taldi gögn máls­ins sýna það með óyggj­andi hætti að verð­sam­keppni á bygg­inga­vöru­mark­aðnum væri mik­il. Orð­rétt segir í nið­ur­stöðum dóms­ins: „Benda öll þessi skila­boð til þess að hið gagn­stæða hafi ver­ið, mikil og hörð sam­keppni, en ekki verð­sam­ráð“.Vand­séð er hvernig hægt er að kom­ast að svo ólíkri nið­ur­stöðu í tveimur málum sem fjalla um sömu máls­at­vik, þ.e. ann­ars vegar í nið­ur­stöðu fjöl­skip­aðs Hér­aðs­dóms Reykja­ness og hins vegar í nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins frá í dag.

Mála­til­bún­aður Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins byggir öðrum þræði á því að reglu­legar verðkann­anir í gegnum síma feli í sér ólög­mætt sam­ráð. Er þetta í and­stöðu við dóm Hér­aðs­dóms Reykja­ness þar sem segir orð­rétt: „Eru verðkann­an­ir, hvort sem þær eru gerðar af opin­berum aðil­um, einka­að­il­um, við­skipta­vin­um, eða innan fyr­ir­tækj­anna sjálfra, ekki sak­næm hátt­sem­i.“ Nið­ur­staða hér­aðs­dóms var afdrátt­ar­laus. Verð­könn­un­ar­sím­tölin sem áttu sér stað voru eðli­leg og í sam­ræmi við lög.

Auglýsing

Byko telur með ólík­indum að stjórn­vald líkt og Sam­keppn­is­eft­ir­litið taki ákvörðun sem er í beinni and­stöðu við nið­ur­stöðu dóm­stóla. Getur slík ákvörðun vart verið lög­mæt. Hefur Byko þegar tekið ákvörðun um að kæra ákvörð­un­ina til áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála."

Umfangs­mikið ólög­mæt sam­ráð að mati eft­ir­lits­ins



Sam­keppn­is­eft­ir­litið til­kynnti í morgun að það hafi lagt 650 milljón króna stjórn­valds­sekt á Nor­vik, móð­ur­fé­lag Byko, fyrir brot gegn sam­keppn­is­lögum og samn­ingnum um Evr­ópska efna­hags­svæðið vegna umfangs­mikil ólög­mæts sam­ráðs við gömlu Húsa­smiðj­una. Í frétt á heima­síðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins seg­ir: „Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur að brot Byko séu mjög alvar­leg og hafi verið framin af ásetn­ingi. Þau voru til þess fallin að valda hús­byggj­endum og almenn­ingi öllum umtals­verðu tjóni. Nánar er rök­stutt í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að hæfi­leg sekt vegna þessa sé 650 mkr. Til að stuðla m.a. að því að brot af þessu tagi verði ekki framin innan þeirrar sam­stæðu sem Byko til­heyrir er sektin lögð á móð­ur­fé­lag Byko, Nor­vík.“

Í frétt­inn­i ­segir einnig að brot Byko hafi verið eft­ir­far­andi:



  • Reglu­bund­in, yfir­leitt viku­leg, sam­skipti við gömlu Húsa­smiðj­una um verð, birgða­stöðu o.fl. í því skyni að hækka verð/vinna gegn verð­lækk­unum á svo­nefndum gróf­vörum (gróf­vörur eru t.d. timb­ur, stein­ull og stál).


  • Sam­ráð við gömlu Húsa­smiðj­una um að hækka verð í öllum til­boðum á gróf­vöru í áföng­um.


  • Sam­ráð við gömlu Húsa­smiðj­una um að vinna gegn verð­sam­keppni í sölu á gagn­vörðu timbri (palla­efni) á aðal­sölu­tíma þeirrar vöru og reyna þess í stað að hækka verð.


  • Sam­ráð við gömlu Húsa­smiðj­una um að hækka verð á mið­stöðv­arofn­um.


  • Að hafa gert sam­eig­in­lega til­raun með gömlu Húsa­smiðj­unni til að fá Múr­búð­ina til að taka þátt í sam­ráði um verð á gróf­vöru og með því að hafa ákveðið með Byko að fylgj­ast með aðgerðum Múr­búð­ar­innar á mark­aðn­um.




Hægt er að lesa nán­ari sam­an­tekt á brotum Byko hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None