Dæmdur fyrir meiðyrði í bloggfærslu á síðu DV

MG-8380-raw-0909141526-715x320.jpg
Auglýsing

Árni Stefán Árna­son, lög­fræð­ingur með dýra­rétt sem sér­svið, var í morgun dæmdur í hér­aðs­dómi Reykja­ness til að greiða Ástu Sig­urð­ar­dóttur 200 þús­und krónur auk vaxta í miska­bætur vegna ummæla sem hann lét falla um hana og rekstur hennar í blogg­færslu á vef­svæði DV í októ­ber 2013.

Ásta rekur fyr­ir­tækið Hunda­rækt­ina ehf., sem elur hunda að Dals­mynni á Kjal­ar­nesi og selur til almenn­ings. Hún er einnig eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins. Þann 8. októ­ber 2013 var sýndur þáttur í frétta­skýr­ing­ar­röð­inni „Mál­ið“ sem sýnd er á sjón­varps­stöð­inni Skjá­Ein­um. Þar var fjallað um starf­semi Ástu að Dals­mynni og meinta illa með­ferð dýra sem átti að hafa átt sér stað þar. Árni Stefán var einn við­mæl­enda sem rætt var við í þætt­in­um.

Blogg­færsla birt­ist dag­inn eftir



DV fjall­aði um þátt­inn í frétt sama dag og vitn­aði til ummæla Árna Stef­áns um mál­ið. Dag­inn eft­ir, þann 9. októ­ber 2013, birti hann síðan blogg­færslu á vefnum DV.is undir fyr­ir­sögn­inni „Dýra­níð að Dals­mynn­i“.

Ásta taldi ýmis ummæli Árna Stef­áns vera æru­meið­andi og var afar ósátt við þau. Í dómnum kemur fram að „með bréfi 18. Nóv­em­ber 2013 buðu stefn­endur honum [Árna Stef­áni  ]... að ná sátt í mál­inu með afsök­un­ar­beiðni og greiðslu hóf­legra miska­bóta að upp­hæð 1.000.000.kr.“ Boð­inu var ekki svarað og því var meið­yrða­mál höfðað í jan­úar 2014. Stefnt var fyrir fjöl­mörg ummæli og krafð­ist Ásta tveggja millj­óna kr´noa í miska­bætur auk greiðslu máls­kostn­að­ar.

Auglýsing

Hér­aðs­dómur Reykja­ness komst að þeirri nið­ur­stöðu í morgun að þrenn ummæli skyldu vera dauð og ómerk. Þau eru: „Dýra­níð að Dals­mynn­i“, „ „Rekstr­ar­að­il­inn Ásta Sig­urð­ar­dóttir hefur aug­ljós­lega einnig gerst brot­leg við dýra­vernd­ar­lög með ýmsum hætti. Við brotum Ástu eins og þau blasa við mér getur refs­ing varðað allt að tveggja ára fang­elsi,“ og  „Það á ekki við um Ástu sem hefur eitt­hvað að fela.“

Árni Stefán þarf að greiða Ástu 200 þús­und krónur í miska­bætur og henni og fyr­ir­tæki hennar sam­tals 400 þús­und krónur í máls­kostn­að. Auk þess var Árna Stef­áni gert að birta dóminn, for­sendur hans og dóms­orð, á blogg­síðu sinni.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None