Dagný Jónsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar um samhæfingu mála, líkt og það er orðað í tilkynningu frá stjórnarráðinu. Þá mun Henný Hinz áfram gegna stöðu aðstoðarmanns ríkisstjórnarinnar á sviði vinnumarkaðs-, efnahags- og loftslagsmála.
Í tilkynningu stjórnvalda segir að Dagný muni vinna að því að „samhæfa stefnu og aðgerðir í málaflokkum sem heyra undir fleiri en eitt ráðuneyti. Meðal umfangsmikilla áherslumála ríkisstjórnarinnar sem snerta málefnasvið flestra ráðuneyta eru sjálfbærni, réttlát umskipti og aukin samkeppnishæfni“.
Dagný er með BA-próf í íslensku frá Háskóla Íslands en hún hefur síðastliðin fjögur ár starfað sem sérfræðingur á upplýsinga- og kynningarsviði Kennarasambands Íslands. Áður starfaði Dagný m.a. sem verkefnisstjóri á kynningar- og markaðssviði Eimskips og sérfræðingur í markaðsdeild Arion banka. Þá var hún þingmaður Framsóknarflokksins á árunum 2003-2007.
Henný Hinz hefur gegnt stöðu aðstoðarmanns ríkisstjórnarinnar á sviði vinnumarkaðs-, efnahags- og loftslagsmála frá haustinu 2020. Áður starfaði Henný, sem er hagfræðingur frá Háskóla Íslands, hjá Alþýðusambandi Íslands, þar af sem deildarstjóri hagdeildar frá 2016.
Bergþóra Benediktsdóttir og Lára Björg Björnsdóttir eru aðstoðarmenn forsætisráðherra.