Dagur óskar eftir viðræðum um undirbúning nýs flugvallar

10191631643_50a2396e7f_b-2.jpg
Auglýsing

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri hefur óskað eftir því við Ólöfu Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra að við­ræður verði hafnar milli borgar og ríkis á grund­velli gagna og til­lagna Rögnu­nefnd­ar­inn­ar. Við­ræð­urnar myndu taka til stofn­unar und­ir­bún­ings­fé­lags um gerð flug­vallar í Hvassa­hrauni og það hvernig rekstr­ar­ör­yggi verði tryggt á Reykja­vík­ur­flug­velli á meðan unnið sé að nýjum flug­velli.

Dagur sendi Ólöfu bréf þar sem þetta kemur fram, en hann greinir einnig frá þessu á Face­book-­síðu sinni. „Jafn­framt hef ég áréttað samn­ings­bundnar skyldur rík­is­ins til að loka þriðju flug­braut­inni á Reykja­vík­ur­flug­velli í sam­ræmi við samn­inga Reykja­vík­ur­borgar og inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins,“ segir Dagur á Face­book. Ljóst sé að Reykja­vík­ur­borg geti skapað sér skaða­bóta­skyldu gagn­vart upp­bygg­ing­ar­að­ilum ef borgin kalli ekki eftir efndum á þeim samn­ings­skuld­bind­ing­um. Í bréfi hans kemur fram að ef til þess kæmi myndi borgin beina end­ur­kröfu um það hendur rík­in­u. 

„Það væri í mínum huga óásætt­an­legt með öllu að borg­ar­búar þyrftu að borga ein­hvers konar bætur vegna van­efnda rík­is­ins. Ég tek fram að ég hef alla tíð gengið út frá því að ríkið virði þessa samn­inga, enda sú regla að samn­ingar standi einn af horn­steinum sam­fé­lags­ins. Engum er það betur ljóst en sjálfu dóms­mála­ráðu­neyt­in­u.“ 

Auglýsing

Bréf borg­ar­stjóra var lagt fram á borg­ar­ráðs­fundi í dag auk áhættu­mats Isa­via, sem tekur til lok­unar þriðju flug­braut­ar­innar á Reykja­vík­ur­flug­velli. Hverf­andi líkur eru taldar á því að slys yrði þar sem manns­líf töp­uð­ust og flug­vél eyði­legð­ist vegna lok­unar flug­brautar 06/24 á Reykja­vík­ur­flug­velli, sam­kvæmt áhættu­mat­inu.

Áhættu­mats­skýrsla Isa­via er stað­fest af Sam­gögnu­stofu og segir í inn­gangi skýrsl­unnar að breyt­ing sem leiði af lokun brautar 06/24 sé þol­an­leg. Í nið­ur­stöðukafla áhættu­mats­ins segir einnig að ólík­legt sé talið að alvar­legt atvik yrði þaðr sem fólk slasast og miklar skemmdir yrðu á bún­aði vegna hlið­ar­vind­ar. „Ólík­legt er talið að slys verði, neyð­ist flug­maður til að lenda við aðstæður sem væru utan marka afkasta­getu flug­vél­ar,“ segir jafn­framt. Áhætta sem hlýst af af lokun braut­ar­innar er sögð í „flokki B“ þar sem ekki er búið að taka neinar ákvarð­anir um mild­un­ar­ráð­staf­an­ir, en ef til form­legrar ákvörð­unar inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um lokun brautar 06/24 kemur verður lagt í þær. Lagðar eru fram frek­ari til­lögur um „mild­un­ar­ráð­staf­an­ir“.

Segja Isa­via ekki fylgja alþjóða­reglum



Borg­ar­full­trúar Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina sendu frá sér frétta­til­kynn­ingu vegna fram­lagn­ingar áhættu­mats­ins og bréfs borg­ar­stjóra til inn­an­rík­is­ráð­herra í dag. Þar kemur fram að flokk­ur­inn telji ein­kenni­legt að borg­ar­stjór­inn fari fram með kröfur um lokun á flug­braut­inni meðan rekstr­ar­ör­yggi flug­vall­ar­ins í Vatns­mýri sé ekki tryggt. Borg­ar­full­trú­arnir segja borg­ar­stjóra fara á svig við til­lögur Rögnu­nefnd­ar­innar með bréfi sínu, og jafn­framt segja þær að við gerð áhættu­mats Isa­via hafi ekki verið fylgt alþjóða­regl­um. „Telja Fram­sókn og flug­vall­ar­vinir að Sam­göngu­stofa þurfi að rök­styðja hvers vegna þessum kröfum var ekki fylg­t.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None