Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ), hefur ákveðið að segja af sér embætti og öllum trúnaðarstörfum sem hún hefur gegnt sem forseti. Frá þessu greinir hún í færslu á Facebook.
Þar segir Drífa að fyrir ákvörðun sinni séu nokkrar ástæður. „Þing ASÍ er í byrjun október og ég þurfti að gera það upp við mig hvort ég gæfi áfram kost á mér. Þegar ég hugsaði málið varð niðurstaða mín sú að ég treysti mér ekki til að starfa áfram yrði ég til þess kjörin og af því leiddi að það væri skynsamlegt í ljósi kjaraviðræðna og undirbúning þingsins að hætta sem fyrst. Ég veit að ég nýt mikils stuðnings félaga og í samfélaginu og fyrir það er ég þakklát. Það eru hins vegar samskipti við ýmsa kjörna fulltrúa innan sambandsins og sú blokkamyndun sem þar hefur átt sér stað sem gera mér það ókleift að starfa áfram sem forseti ASÍ.“
Átök innan ASÍ óbærileg
Drífa segir í færslunni að hún hafi ekki vílað fyrir sér að taka slaginn fyrir launafólk gagnvart stjórnvöldum eða atvinnurekendum enda sé það hluti af því að vera í verkalýðsbaráttu. „Átök innan ASÍ hafa hins vegar verið óbærileg og dregið úr vinnugleði og baráttuanda. Þegar við bætast ákvarðanir og áherslur einstakra stéttarfélaga sem fara þvert gegn minni sannfæringu er ljóst að mér er ekki til setunnar boðið. Ég treysti mér ekki til að vinna með fólki sem ég á ekki samleið með í baráttunni. Og ég hef sem forseti verið í þeirri stöðu sem ég ætlaði mér aldrei; að telja mig ekki eiga annars kost en að gagnrýna stjórnarákvarðanir og formenn stærstu stéttarfélaga innan ASÍ.“
Gagnrýnir forystu Eflingar og VR
Hún nefnir sérstaklega ákvörðun stjórnar Eflingar, næst stærsta stéttarfélags landsins, um að standa fyrir hópuppsögn á skrifstofu félagsins sem Drífa sá sig knúna til að mótmæla. „Ég þurfti einnig að bregðast við linnulausri, en óljósri gagnrýni formanns VR á mín störf. Dæmin eru fleiri og það sem fólk leyfir sér í samskiptum hvert við annað innan hreyfingarinnar er henni ekki til framdráttar og félögum ekki til hagsbóta.“
Að mati Drífu er verkalýðshreyfingin ein merkilegasta mannréttindahreyfing heims og hún segir hjarta sitt hafa slegið þar og muni gera það áfram. „Ég get hins vegar ekki sinnt störfum mínum lengur sem forseti ASÍ. Þá er hreinlegast að segja þetta gott. Og til að taka af allan vafa er þetta ekki hluti af einhverri stærri fléttu, ég einfaldlega hverf af þessum vettvangi án þess að hyggja á endurkomu.“
YFIRLÝSING Ég hef ákveðið að segja af mér embætti forseta Alþýðusambands Íslands og þeim trúnaðarstöðum sem ég hef...
Posted by Drífa Snædal on Wednesday, August 10, 2022
Kannað hverjum sé best treystandi fyrir ASÍ
Ljóst er að undirbúningur fyrir þing ASÍ í október er hafinn og heimildir Kjarnans herma að byrjað hafi verið að kanna mótframboð gegn Drífu fyrir nokkuð löngu síðan. Í síðustu viku sendi Gallup út könnun þar sem spurt var sérstaklega um hverjum svarendur treystu best fyrir því að leiða ASÍ næstu tvö árin. Fyrir liggur að einhver hefur keypt þá spurningu og látið spyrja hana í spurningavagni Gallup.
Valkostirnir sem boðið var upp á voru fimm: Drífa Snædal, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Kristján Þórður Snæbjörnsson, formaður framkvæmdastjórnar Rafiðnaðarsambands Íslands.