Drífa Snædal segir af sér embætti forseta ASÍ

Forseti ASÍ segir að átök innan sambandsins hafi verið óbærileg og dregið úr vinnugleði og baráttuanda. „Þegar við bætast ákvarðanir og áherslur einstakra stéttarfélaga sem fara þvert gegn minni sannfæringu er ljóst að mér er ekki til setunnar boðið.“

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Auglýsing

Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), hefur ákveðið að segja af sér emb­ætti og öllum trún­að­ar­störfum sem hún hefur gegnt sem for­seti. Frá þessu greinir hún í færslu á Face­book.

Þar segir Drífa að fyrir ákvörðun sinni séu nokkrar ástæð­ur. „Þing ASÍ er í byrjun októ­ber og ég þurfti að gera það upp við mig hvort ég gæfi áfram kost á mér. Þegar ég hugs­aði málið varð nið­ur­staða mín sú að ég treysti mér ekki til að starfa áfram yrði ég til þess kjörin og af því leiddi að það væri skyn­sam­legt í ljósi kjara­við­ræðna og und­ir­bún­ing þings­ins að hætta sem fyrst. Ég veit að ég nýt mik­ils stuðn­ings félaga og í sam­fé­lag­inu og fyrir það er ég þakk­lát. Það eru hins vegar sam­skipti við ýmsa kjörna full­trúa innan sam­bands­ins og sú blokka­myndun sem þar hefur átt sér stað sem gera mér það ókleift að starfa áfram sem for­seti ASÍ.“

Átök innan ASÍ óbæri­leg

Drífa segir í færsl­unni að hún hafi ekki vílað fyrir sér að taka slag­inn fyrir launa­fólk gagn­vart stjórn­völdum eða atvinnu­rek­endum enda sé það hluti af því að vera í verka­lýðs­bar­áttu. „Átök innan ASÍ hafa hins vegar verið óbæri­leg og dregið úr vinn­u­gleði og bar­áttu­anda. Þegar við bæt­ast ákvarð­anir og áherslur ein­stakra stétt­ar­fé­laga sem fara þvert gegn minni sann­fær­ingu er ljóst að mér er ekki til set­unnar boð­ið. Ég treysti mér ekki til að vinna með fólki sem ég á ekki sam­leið með í bar­átt­unni. Og ég hef sem for­seti verið í þeirri stöðu sem ég ætl­aði mér aldrei; að telja mig ekki eiga ann­ars kost en að gagn­rýna stjórn­ar­á­kvarð­anir og for­menn stærstu stétt­ar­fé­laga innan ASÍ.“

Auglýsing

Gagn­rýnir for­ystu Efl­ingar og VR

Hún nefnir sér­stak­lega ákvörðun stjórnar Efl­ing­ar, næst stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins, um að standa fyrir hóp­upp­sögn á skrif­stofu félags­ins sem Drífa sá sig knúna til að mót­mæla. „Ég þurfti einnig að bregð­ast við linnu­lausri, en óljósri gagn­rýni for­manns VR á mín störf. Dæmin eru fleiri og það sem fólk leyfir sér í sam­skiptum hvert við annað innan hreyf­ing­ar­innar er henni ekki til fram­dráttar og félögum ekki til hags­bóta.“

Að mati Drífu er verka­lýðs­hreyf­ingin ein merki­leg­asta mann­rétt­inda­hreyf­ing heims og hún segir hjarta sitt hafa slegið þar og muni gera það áfram. „Ég get hins vegar ekki sinnt störfum mínum lengur sem for­seti ASÍ. Þá er hrein­leg­ast að segja þetta gott. Og til að taka af allan vafa er þetta ekki hluti af ein­hverri stærri fléttu, ég ein­fald­lega hverf af þessum vett­vangi án þess að hyggja á end­ur­komu.“

YFIR­LÝS­ING Ég hef ákveðið að segja af mér emb­ætti for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands og þeim trún­að­ar­stöðum sem ég hef...

Posted by Drífa Snæ­dal on Wed­nes­day, Aug­ust 10, 2022

Kannað hverjum sé best treystandi fyrir ASÍ

Ljóst er að und­ir­bún­ingur fyrir þing ASÍ í októ­ber er haf­inn og heim­ildir Kjarn­ans herma að byrjað hafi verið að kanna mót­fram­boð gegn Drífu fyrir nokkuð löngu síð­an. Í síð­ustu viku sendi Gallup út könnun þar sem spurt var sér­stak­lega um hverjum svar­endur treystu best fyrir því að leiða ASÍ næstu tvö árin. Fyrir liggur að ein­hver hefur keypt þá spurn­ingu og látið spyrja hana í spurn­inga­vagni Gallup.

Val­kost­irnir sem boðið var upp á voru fimm: Drífa Snædal, Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður Efl­ing­ar, Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins og Krist­ján Þórður Snæ­björns­son, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent