Efnahagslega velferð hægt að mæla með fleiru en hagvexti

Mælingar á hagvexti sýna ekki nógu vel hvaða áhrif umsvif í atvinnulífi, verslun og viðskiptum hafa á efnahagslega velferð þjóðarinnar. Í nýjasta þætti Ekon segir David Cook nýdoktor framfarastuðul geta reynst betra tól til að meta efnahagslega velferð.

Einhver fylgni er á milli efnahagslegrar velferðar fólks og stærðar hagkerfa. Þar með er þó ekki öll sagan sögð.
Einhver fylgni er á milli efnahagslegrar velferðar fólks og stærðar hagkerfa. Þar með er þó ekki öll sagan sögð.
Auglýsing

Fram­fara­stuð­ull (e. Genuine Progress Ind­icator) gæti verið betur til þess fall­inn að gera grein fyrir efna­hags­legri vel­ferð þjóð­ar­innar heldur en sá mæli­kvarði sem helst er not­aður nú til dags. Sá mæli­kvarði sem stuðst er við í dag er breyt­ing á vergri lands­fram­leiðslu en breyt­ing­in, verði aukn­ing á lands­fram­leiðsl­unni, er í dag­legu tali kölluð hag­vöxt­ur. Þetta segir David Cook nýdoktor í umhverf­is- og auð­linda­fræði, í nýjasta þætti Ekon. Sam­kvæmt Cook getur fram­fara­stuð­ull aðstoðað stjórn­völd við að skilja betur þjóð­hag­fræði­lega stöðu Íslands til þess að auka vel­ferð á Íslandi.

Cook aðlag­aði fram­fara­stuð­ul­inn að íslensku hag­kerfi ásamt Bryn­hildi Dav­íðs­dóttur og þau hafa einnig gert grein fyrir þróun hans fyrir árin 2000 til 2019. Fram­fara­stuð­ull­inn tekur til­lit til ann­arra þátta heldur en hag­vaxt­ar­mæli­kvarð­inn ger­ir, til dæmis óæski­legra umhverf­is­legra áhrifa sem kunna að hljót­ast af þeim umsvifum sem falla innan lands­fram­leiðslu. Þannig lækkar gildi fram­fara­stuð­uls­ins ef losun óæski­legra gróð­ur­húsa­loft­teg­unda eykst. Fram­fara­stuð­ull­inn nær einnig til þró­unar félags­legra þátta á borð við tekju­ó­jöfnuð – auk­ist hann, lækkar gildi fram­fara­stuð­uls­ins.

Hag­vöxtur tekur ekki til­lit til óæski­legra áhrifa

Inn­leið­ing mæli­kvarða á borð við fram­fara­stuð­ul­inn er eitt af heims­mark­miðum Sam­ein­uðu þjóð­anna um sjálf­bæra þróun og nú þegar hafa önnur lönd til­einkað sér svip­aða mæli­kvarða til að mæla efna­hags­lega vel­ferð. Cook segir það óæski­legt að horfa aðeins til hag­vaxtar til að meta vel­ferð þar sem hag­vaxt­ar­mæli­kvarð­anum var aldrei ætlað að gera grein fyrir vel­ferð. Vissu­lega sé fylgni á milli stærð hag­kerfa og lífs­kjara en engu að síður eru vissir þættir sem ýta undir hag­vöxt taldir slæmir fyrir vel­ferð.

Auglýsing

Sem dæmi um slíkt nefnir Cook meng­un­ar­slys. „Segjum sem svo að meng­un­ar­slys ætti sér stað á Íslandi og mikið magn olíu myndi skola hér á fjör­ur. Þau umsvif sem leiddu til olíu­lek­ans skapa hag­vöxt sem og þær aðgerðir sem ráð­ast þarf í til þess að þrífa upp olí­una. Hag­vöxtur mælir ein­ungis hversu mikil umsvif eru í hag­kerf­in­u.“

Cook bendir einnig á hvernig fram­fara­stuð­ull­inn myndi meta áhrif málm­bræðslu og túrisma á efna­hags­lega vel­sæld. Þessir atvinnu­vegir hafa haft mikil jákvæð áhrif á hag­vöxt á und­an­förnum ára­tug­um. Fylgi­fiskur auk­innar málm­bræðslu og auk­ins fjölda ferða­manna er mikil aukn­ing á útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem hefur engin áhrif á mæl­ingu hag­vaxt­ar. Fram­fara­stuð­ull­inn myndi aftur á móti taka mið af útblæstr­inum og þannig gera betur grein fyrir því hvaða áhrif þessir atvinnu­vegir hafi á efna­hags­lega vel­ferð.

Hægt er að hlusta á við­tal Emils Dags­sonar við David Cook í nýjasta þætti Ekon í mynd­band­inu hér fyrir neð­an. Þætt­irnir Ekon eru styrktir af Háskóla Íslands, sem styður vís­inda­­menn til virkrar þátt­­töku í sam­­fé­lag­inu í krafti rann­­sókna þess og sér­­þekk­ing­­ar. Einnig er hægt að hlusta á Ekon á Soundcloud.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent