„Ég fæ enn kökk í hálsinn þegar ég hugsa um örvæntinguna“

tsunami.jpg
Auglýsing

„Tíu ár og ég fæ enn kökk í háls­inn þegar ég hugsa um örvænt­ing­una sem ríkti hjá þeim sem voru að leita að fjöl­skyldu­með­lim­um, þá sem sátu stjarfir og horfðu út í loftið eftir missi, þá sem sögðu manni sögur af börn­unum sem þeir gátu ekki bjargað og horfðu á hverfa í flóð­bylgj­unni og svo mætti áfram telja. Reglu­lega sé ég þetta fyrir mér, heyri grát­inn, sé til­kynn­inga­töfl­urnar þar sem fólk aug­lýsti eftir sínum nánustu, finn lykt­ina....“

Þetta segir Stein­grímur Sæv­arr Ólafs­son á Face­book síðu sinni í dag, í til­efni af því að tíu ár eru frá einum mann­skæð­ustu nátt­úru­ham­förum í sög­unni, þegar um tvö hund­ruð þús­und manns lét­ust þegar flóð­bylgja skall á Tælandi og eyjum í nágrenni. Stein­grímur Sæv­arr var í hópi Íslend­inga sem voru sendir á svæðið fljót­lega eftir atburð­ina hörmu­legu til að aðstoða fólk á svæð­inu.

https://www.youtu­be.com/watch?v=R­DOuwMj7Xzo

Á síðu sinni lýsir Stein­grímur Sæv­arr því sem fyrir augu bar með áhrifa­miklum hætti, og segir ferð­ina hafa gjör­breytt við­horfi sínu til lífs­ins. Orð­rétt segir hann:

Auglýsing

„Fyrir tíu árum sléttum sat ég heima hjá mér að hita upp jóla­graut­inn og narta í síð­ustu rjúpna­lær­in, algjör­lega grun­laus um þær skelfi­legu ham­farir sem voru að bresta á í Asíu þegar flóð­bylgjan mikla skall á með þeim afleið­ingum að um 200.000 manns lét­ust.

steingrimur Stein­grímur Sæv­arr Ólafs­son.

Enn síður grun­aði mig að milli jóla og nýárs fengi ég sím­tal úr for­sæt­is­ráðu­neyt­inu þar sem ég var beð­inn um að fara í sjúkra­flug til Tælands til að sækja slas­aða Svía og flytja til síns heima.

Hóp­ur­inn sem fór út var gríðarlega vel skip­aður lækn­um, hjúkr­un­ar­fólki, björg­un­ar­sveit­ar­mönn­um, skipu­leggj­end­um, starfs­mönnum sjúkra­bíla og svo mætti áfram telja. Og þá vant­aði einn sem gæti verið tengiliður milli yfir­valda á Íslandi, Tælandi og í Sví­þjóð, ein­hvern sem gæti mögu­lega kjaftað sig út úr óvæntum vand­ræð­um, ein­hvern sem gæti bjargað sér á skand­in­av­ísku, ein­hvern sem gæti skrifað um þetta og miðlað áfram. Sím­talið sem mér barst kom mér jafn mikið á óvart og fjöl­skyld­unni, sem eftir stutta umhugs­un, gaf blessun sína fyrir því að ég tæki verk­efnið að mér. Dag­arnir sem í hönd fóru fyrir sléttum tíu árum eru jafn skýrir og þeir hefðu gerst fyrir ári síð­an. Skyndikúrsar í hinu og þessu, bólu­setn­ing­ar, skipu­lagn­ing­ar­fund­ir, kynn­ast hetj­unum sem sinntu alvöru verk­efn­unum í ferð­inni og síð­ast en ekki síst að und­ir­búa sig and­lega.

Eins og maður hefði getað und­ir­búið sig undir það sem blasti við manni við kom­una til Tælands.

Tíu ár og ég fæ enn kökk í háls­inn þegar ég hugsa um örvænt­ing­una sem ríkti hjá þeim sem voru að leita að fjöl­skyldu­með­lim­um, þá sem sátu stjarfir og horfðu út í loftið eftir missi, þá sem sögðu manni sögur af börn­unum sem þeir gátu ekki bjargað og horfðu á hverfa í flóð­bylgj­unni og svo mætti áfram telja. Reglu­lega sé ég þetta fyrir mér, heyri grát­inn, sé til­kynn­inga­töfl­urnar þar sem fólk aug­lýsti eftir sínum nánustu, finn lykt­ina...

Það er óhætt að segja að þetta hafi verið ferða­lag sem ég kom ekki samur til baka úr. Hún ger­breytti lífs­við­horfi mínu, hug­myndum mínum um verð­mæti, vin­áttu, fjöl­skyldu­bönd og raunar öllu.

Þú getur ekki breytt gær­deg­inum og þú veist ekki hvernig morg­un­dag­ur­inn er; nýttu dag­inn í dag til hins ítrasta til að gera góða hluti, leyfa fjöl­skyldu og vinum að finna að þú ert til stað­ar. Dag­ur­inn í dag skiptir máli.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None