"Ég held að þjóðin skilji að við þurfum að fá kjarabætur"

RSlUjTkB-0725.jpg
Auglýsing

Þor­björn Jóns­son, for­maður Lækna­fé­lags Íslands, var gestur Sig­mars Guð­munds­sonar í Kast­ljós­inu á RÚV í kvöld. Eins og kunn­ugt er hófust verk­falls­að­gerðir lækna á mið­nætti, en þetta er í fyrsta skipti sem læknar fara í verk­fall hér á landi.

Læknar hafa ekki viljað kynna launa­kröfur sínar opin­ber­lega, en talið er að þær hljóði upp á ríf­lega 30 pró­senta launa­hækkun að lág­marki. "Við erum að tala um veru­legar kjara­bæt­ur, ég get stað­fest það, en við höfum ekki talið skyn­sam­legt að fara út í karp um pró­sentur og ein­staka tölur í fjöl­miðl­u­m," sagði Þor­björn aðspurður í Kast­ljósi um launa­kröfur lækna.

Þor­björn segir lækna finna fyrir stuðn­ingi og með­byr frá almenn­ingi. "Ég held að þjóðin skilji það að læknar þurfa að fá kjara­bót." Hann segir veru­legar kjara­bætur verða að koma til til að sporna við atgervis­flótta lækna. "Þetta snýst um fram­tíð lækn­is­þjón­ustu á Íslandi. Okkur finnst krafa okkar sann­gjörn til að fyr­ir­byggja upp­lausn í heil­brigð­is­kerf­inu, ef fólk kemur ekki aftur heim til að vinna."

Auglýsing

Launa­kröfur lækna eru ekki síst til að trekkja frekar unga lækna aftur heim til Íslands eftir lækna­nám erlend­is. "Við verðum að fá nýja þekk­ingu til lands­ins. Við höfum þeg­ar glatað einni kyn­slóð, þeir sem eru búnir að vera úti lengur en í tíu ár eru mjög lík­legir til að koma ekki aftur heim."

Aðspurður um við­brögð lækna ef verk­fall þeirra verður stöðvað með laga­setn­ingu, svar­að­i Þor­björn: "Ég held að það væri óheilla­skref að fara þá leið, læknar yrðu mjög óhressir með það."

Yfir­stand­andi verk­fall nær til heil­brigð­is­stofn­ana á lands­byggð­inni auk heilsu­gæslu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hluta Land­spít­ala. Á mið­viku­dag hefst svo annað tveggja daga verk­fall og fleiri eru boð­uð. Hátt í átta hund­ruð læknar munu taka þátt í verk­falls­að­gerð­un­um.

Kjara­við­ræður lækna við ríkið eru í hnút, en næsti fundur í kjara­deil­unni hefur verið boð­aður hjá Rík­is­sátta­semj­ara á mið­viku­dag­inn. Lækna­fé­lag­inu hafa borist stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingar í dag frá Félagi íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga, Félagi líf­einda­fræð­inga, frá Ljós­mæðra­fé­lagi Íslands­ og frá Sál­fræð­inga­fé­lagi Íslands.

 

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None