„Ég sé og ég heyri“

Nýr þingmaður VG segist þekkja fátækt af eigin raun og að hún myndi hjálpa öllum þeim sem leitað hafa til hennar með ákall um aðstoð ef hún gæti.

Jódís Skúladóttir nýr þingmaður VG.
Jódís Skúladóttir nýr þingmaður VG.
Auglýsing

„Ástæðan fyrir því að ég kveð mér hljóðs hér í dag er sú að póst­hólfið mitt er yfir­fullt af póstum frá fátækum Íslend­ing­um, öryrkjum sem hrópa á aðstoð fyrir jól­in. Mig langar að segja við ykk­ur: Ég sé og ég heyri og ef ég gæti svarað hverjum pósti og ef ég gæti hjálpað hverju og einu þá myndi ég gera það en á því hef ég ekki tök.“

Þetta sagði Jódís Skúla­dóttir þing­maður Vinstri grænna undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag en um var að ræða jóm­frú­ar­ræðu Jódís­ar.

Hún hóf mál sitt á að segja að hún stæði í pontu af mik­illi auð­mýkt þegar hún flytti jóm­frú­ar­ræðu sína. Það væru for­rétt­indi að fá að taka sæti á Alþingi og tæki hún því af mik­illi ábyrgð.

Auglýsing

Víða á lands­byggð­inni enga hjálp að fá

Eins og áður kom fram sagð­ist þing­mað­ur­inn ekki geta hjálpað öllum þeim sem hafa haft sam­band við hana með ákall um aðstoð. Hún sagð­ist hins vegar geta lagt sig alla fram við að standa með þeim málum sem koma inn á þingið til þess að veita þeim braut­ar­gengi og til þess að laga stöð­una til lengri tíma.

„Mig langar að segja ykkur að fátækt þekki ég á eigin skinni. Ég var barn­ung móðir og ég hef verið not­andi að alls konar þjón­ustu sem venju­legt fólk úti í sam­fé­lag­inu eins og ég og þið þurfum að nota. Það sem mig langar til að tala um hér í dag er líka það sem er sam­merkt með allri þeirri þjón­ustu sem ég hef þurft að nota sem venju­legur þegn í þessu landi. Elsti sonur minn sem ég eign­að­ist þegar ég var 14 ára gömul var lang­veikt barn. Barna­spít­al­inn er í Reykja­vík. Ég er þol­andi kyn­ferð­is­of­beld­is. Hjálpin er í Reykja­vík. Ég er lög­fræð­ingur að mennt. Ég þurfti að sækja mína menntun til Reykja­vík­ur,“ sagði hún.

Jódís bætti því við að allir Íslend­ingar væru hluti af þessu sam­fé­lagi en fólk af lands­byggð­inni byggi alltaf við skertan kost. „Hér hefur verið talað um að fólk standa í röðum eftir jóla­mat. Víða á lands­byggð­inni eru engar raðir af því að þar er engin hjálp. Þetta var það sem mig lang­aði að ávarpa í minni fyrstu ræð­u,“ sagði hún að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent