Eiginkona olíuforstjóra hafnaði handskrifaðri ávísun upp á milljarð dala

haroldhamm.png
Auglýsing

Harold Hamm, for­stjóri olíu­yr­ir­tæk­is­ins Continental Reso­urces, er ríkur mað­ur. Í októ­ber 2014 var auður hans er met­inn á 18,7 millj­arði dala, um 2.422 millj­arða króna. Það setti hann í 30. sæti yfir rík­ustu menn Banda­ríkj­anna og 76. sæti yfir rík­ustu menn heims.

Harold Hamm. Harold Hamm.

 

Auglýsing

Ljóst er að sá auður hefur eitt­hvað skroppið saman á síð­ustu mán­uðum sam­hliða falli á heims­mark­aðs­verði á olíu.

Í nóv­em­ber skildi Hamm, sem verður sjö­tugur á þessu ári, við eig­in­konu sína til 26 ára, Sue Ann Arnall. Þegar mikil auð­ævi eru undir í hjóna­bandi sem staðið hefur í svo langan tíma gengur oft erf­ið­lega að skipta auðnum á milli hjón­anna. Það er til­fellið í skiln­aði Hamm og Arnall.

Í gær birti frétta­stofan CNBC Twitt­er-­færslu af hand­skrif­aðri ávísun sem Hamm bauð Arnall til þess að ljúka eign­ar­skiptum þeirra á milli. Færsl­una má sjá hér að neð­an:



Sam­kvæmt ávís­un­inni, sem er dag­sett síð­ast­lið­inn mánu­dag, bauð Hamm fyrrum eig­in­konu sinni 974.790.317,77 dali, eða um 126,2 millj­arða króna. Arnall hafn­aði til­boð­inu, sem er upp á rúm­lega fimm pró­sent af ætl­uðum auð Hamm líkt og hann var í októ­ber í fyrra. Hún vill fá hærri upp­hæð frá fyrrum eig­in­manni sín­um.

Þetta stað­festi lög­maður hennar í tölvu­pósti til CNBC.

Auður Hamm hefur likast til dreg­ist mjög saman síð­ustu mán­uði. Hann á 68 pró­sent hlut í Continental Reso­urces, sem bæði leitar að og vinnur olíu. Í haust var gengi bréfa í félag­inu um 60 dalir á hlut. Síð­asta skráða gengi í gær var 33,6 dalir á hlut og gengið því nálægt helm­ing­ast í kjöl­far falls á heims­mark­aðs­verði á olíu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None