Einn ritstjóri 365 rekinn, hinn reynir að segja upp

forsidumynd.000.jpg
Auglýsing

Mikil upp­stokkun átti sér stað innan 365 miðla í dag. Mik­ael Torfa­son aðal­rit­stjóri hefur verið rek­inn, Ólafur Steph­en­sen rit­stjóri hefur reynt að segja upp störfum og tveir frétta­stjórar hafa verið settir af. Kristín Þor­steins­dótt­ir, útgef­andi 365 miðla, hefur tekið að sér starf aðal­rit­stjóra og Sig­ur­jón M. Egils­son, útvarps­maður og rit­stjóri www.midjan.is, hefur verið ráð­inn sem frétta­rit­stjóri.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans hafa breyt­ingar legið í loft­inu síðan að til­kynnt var um ráðn­ingu Krist­ínar Þor­steins­dóttur sem útgef­anda 365 í lok júlí síð­ast­lið­ins. Kristín starf­aði fyrir nokkuð löngu á ýmsum fjöl­miðl­um, lengst af hjá frétta­stofu RÚV, en gerð­ist síðar yfir­maður sam­skipta­sviðs Baugs, fjár­fest­inga­fé­lags sem var stýrt um ára­bil af Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni, og upp­lýs­inga­full­trúi flug­fé­lags­ins Iceland Express, sem var stýrt af Pálma Har­alds­syni.  Jón Ásgeir var lengi aðal­eig­andi 365 og Pálmi var einnig á meðal eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins um tíma. Í dag er aðal­eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins Ingi­björg Pálma­dótt­ir, eig­in­kona Jóns Ásgeirs.

Ólafur reyndi að segja upp



Í morgun var Mik­ael Torfa­syni sagt upp störfum sem aðal­rit­stjóra 365 miðla. Hann var ráð­inn í mars 2013 og starf­aði því hjá fjöl­miðl­aris­anum í um eitt og hálft ár. Skömmu síðar var starfs­fólki til­kynnt að Sig­ur­jón M. Egils­son, sem var frétta­rit­stjóri Frétta­blaðs­ins á árum áður en hefur und­an­farin miss­eri sinnt frétta­flutn­ingi á síð­unni www.midjan.is og haldið úti útvarps­þætt­inum Sprengisandi, hefði verið ráð­inn sem frétta­rit­stjóri. Kristín Þor­steins­dóttir mun setj­ast, að minnsta kosti tíma­bund­ið, í stól aðal­rit­stjóra.

Ólafi Steph­en­sen, sem hefur verið rit­stjóri Frétta­blaðs­ins í um fjögur og hálft ár, var, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, boðið að taka við breyttu hlut­verki á frétta­stofu 365 miðla. Hann hefði þá heyrt undir Sig­ur­jón M. Egils­son, nýráð­inn frétta­rit­stjóra. Ólafur mun hafa reynt að segja upp störfum í kjöl­farið en upp­sögn hans var ekki mót­tek­in, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Starfs­fólk 365 miðla sem Kjarn­inn ræddi við telur skýrt að Ólafur muni ekki mæta aftur til starfa, þótt það sé ekki úti­lok­að. Vilji sé til þess á meðal stjórnar 365 að láta Ólaf vinna upp­sagn­ar­frest. Ólafur svar­aði ekki skila­boðum Kjarn­ans við vinnslu frétt­ar­inn­ar.

Auglýsing

Þá herma heim­ildir Kjarn­ans að Breki Loga­son hafi verið settur af sem frétta­stjóri Stöðvar 2 og Andri Ólafs­son settur af sem frétta­stjóri Frétta­blaðs­ins. Þeim hefur báðum verið boðið ný störf á frétta­stof­unni.

 

Við­bót klukkan 18:28:

Kristín Þor­steins­dótt­ir, útgef­andi og sitj­andi aðal­rit­stjóri 365 miðla, vill koma því að fram­færi að Ólafur Steph­en­sen sé enn starf­andi hjá fyr­ir­tæk­inu og sé raunar við störf á þess­ari stundu. Hún segir einnig að Breki Loga­son og Andri Ólafs­son séu enn frétta­stjór­ar. Þegar ofan­greind frétt var skrifuð var stuðst við fjöl­margar sam­hljóma heim­ildir um stöð­una innan 365 miðla á þeim tíma. Kjarn­inn stendur því að öllu leyti við frétt­ina.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None