Ríkisútvarpið er ekki að stofna nýja útvarpsrás sem heitir Rás 3, líkt og greint var frá á fréttavefnum Vísi.is fyrr í dag, heldur stafræna útvarpsstöð fyrir börn. Rekstrarkostnaður hinnar nýju stöðvar, sem verður einungis aðgengileg í gegnum netið, mun einungis hlaupa á hundruð þúsundum króna á ári miðað við áætlanir. Þetta kemur fram í svari Ingólfs Bjarna Sigfússonar, nýmiðlastjóra RÚV, við fyrirspurn Kjarnans um málið.
Ingólfur Bjarni segir engar breytingar fyrirhugaðar á útvarpsrekstri Ríkisútvarpsins. Metnaður og almannaþjónustuverkefni RÚV sé að trggja landsmönnum öfluga dagskrá á Rás 1 og Rás 2 um allt land. " Ný tækni og tilkoma snjalltækja breytir hins vegar forsendum fyrir alla fjölmiðla. Notendahópurinn sundrast og þarfirnar eru sértækari. Ný tækni getur auðveldað fjölmiðlum að raða upp tilbúnu efni í nýjum efnisveitum með sáralitlum tilkostnaði.
Í auglýsingu um verkefnisstjóra KrakkaRÚV kom m.a. fram að stefnt væri að opnun nýrrar stafrænnar útvarpsstöðvar fyrir börn. Sú útvarpsstöð eru þó með allt öðru sniði, efnislega og tæknilega, en þær rásir sem RÚV hefur rekið til þessa. Dreifing verður t.a.m. einungis um netið í stað FM-dreifingar, sem væri gríðarlega kostnaðarsöm. Rekstrarkostnaður RÚV vegna netstöðvar KrakkaRÚV er einnig mjög lágur og nemur hundruð þúsunda króna árlega m.v. áætlanir. Með nýrri stafrænni útvarpsrás fyrir börn er verið að bæta þjónustu með því að nýta efni betur en áður – en án þess að auka kostnað nema að mjög litlu leyti."
Ingólfur Bjarni segir að umræður um Rás 3 hafi komið reglulega upp á nokkura ára biæli og hann segir að færa megi fyrir því rök að RÚV eigi að sinna yngri hlustendahópum á rás sem þeim sé ætluð. Umfang og kostnaður hai hins vegar leitt til þess að ávallt hafi verið horfið frá þeim hugmyndum. "
Dagskrá RÚV er í sífelldri skoðun og lifandi umræða meðal starfsfólks og stjórnenda um hvernig RÚV uppfyllir best hlutverk sitt sem almannaþjónusta sem á erindi við alla þjóðina. Umræður um Rás 3 og sambærilegar hugmyndir eru eðlilegur og sjálfsagður hluti þeirrar umræðu."