Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, kom fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun og játaði brot sín í lekamálinu svokallaða. Aðspurður af dómara hvort ný sönnunargögn lögreglu í málinu hefðu breytt afstöðu hans til sakargifta, kvað Gísli svo ekki vera, en afstaða hans hefði engu að síður breyst.
Í máli Helga Magnúsar Gunnarssonar kom fram að lögregla hefði um helgina endanlega fengið staðfest að Gísli hafi lekið skjalinu um Tony Omos til fjölmiðla. Þá hefði lögregla keyrt sérstakan hugbúnað á tölvu Gísla, sem hefði staðfest brot Gísla í lekamálinu. Helgi hafði þá samband við lögmann Gísla sem gerði skjólstæðingi sínum viðvart.
Helgi Magnús fullyrti fyrir dómi að ný sönnunargögn hefðu sýnilega breytt afstöðu Gísla til sakargifta, og því ætti það ekki að vera honum til refsimildunar að stíga fram og játa sekt sína á þessu stigi máls. Ríkissaksóknari fer enn fram á að Gísli verði dæmdur í eins árs fangelsi.
Verjandi Gísla Freys, Ólafur Garðarsson, sagði fyrir dómi að málið hefði legið þungt á skjólstæðingi sínum og á síðustu dögum hefði hann sokkið dýpra og dýpra. Á mánudaginn hafi Gísli svo tilkynnt lögmanni sínum að hann hygðist játa brot sín, hann gæti ekki lifað með mögulegum sýknudómi vitandi að hann væri sekur. Þá hafi hann ekki viljað draga vini sína og samstarfsmenn fyrir dóm í máli þar sem hann hefði gerst brotlegur við lög. Þá gagnrýndi verjandi Gísla lögreglu fyrir að halda áfram lögreglurannsókn eftir að ákæra í málinu var gefin út.
Dómur verður upp kveðinn í málinu klukkan ellefu.
Játaði brot sín fyrir Hönnu Birnu í gær
Gísli Freyr játaði í gær fyrir saksóknara og Hönnu Birnu að hafa lekið minnisblaði um hælisleitandann Tony Omos til Fréttablaðsins og mbl.is í nóvember á síðasta ári, í kjölfar þess að aðalmeðferð í sakamáli Ríkissaksóknara á hendur honum var frestað í gær. Hanna Birna birti síðdegis í gær yfirlýsingu þar sem hún sagði trúnaðarbrot Gísla gagnvart sér, ráðuneytinu og almenningi vera algjört og alvarlegt. Sér í lagi sökum þess að Gísli hafi ítrekað haldið fram sakleysi sínu, ekki aðeins gagnvart yfirvöldum og fjölmiðlum, heldur einnig gagnvart samstarfsfólki sínu og yfirmönnum í innanríkisráðuneytinu.
Þá sagði Hanna Birna í yfirlýsingu sinni í gær: "Sú staðreynd að fyrrverandi aðstoðarmaður minn hafi brotið svo alvarlega á trúnaði gagnvart mér sem ráðherra, sem ítrekað hef haldið uppi vörnum fyrir hann í því trausti að hann hefði skýrt mér og öðrum satt og rétt frá, kemur mér algjörlega í opna skjöldu og er þyngri byrði fyrir mig en ég get lýst í fáum orðum."