Ríkisráð kemur ekki saman til fundar á Bessastöðum gamlársdag, 31. desember 2021, eins og venja hefur verið undanfarna áratugi. Ástæðan sem gefin er upp í fréttatilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands er sú að í það minnsta þrír ráðherrar verða í einangrun um áramótin vegna kórónuveirusmits. Í ríkisráði eiga sæti ráðherrar og forseti Íslands.
Sú hefð að hafa fund í ríkisráði á gamlársdag hefur verið við lýði frá því að Kristján Eldjárn tók við embætti forseta Íslands. Á því hafa orðið þrjár undantekningar fram til þessa, segir í tilkynningunni.
Fyrsta undantekningin var árið 1978 þegar ríkisráðsfundur var haldinn degi fyrr og mun það hafa verið vegna þess að gamlársdag það ár bar upp á sunnudag. Árið 1980, á fyrsta ári Vigdísar Finnbogadóttur á forsetastóli, var fundur boðaður en honum frestað á síðustu stundu vegna spennu og vanda í stjórnarsamstarfi. Árið 1989 var ríkisráðsfundur haldinn laugardaginn 30. desember, aftur væntanlega svo að hann skaraðist ekki á við messutíma á sunnudegi.
Allar götur síðan hefur ríkisráð komið saman á gamlársdag og verður þetta því í fyrsta sinn í rúma þrjá áratugi sem það er ekki gert. Næsti fundur í ríkisráði verður boðaður á nýju ári en dagsetning verður ákveðin síðar.