Ennþá nokkur bið í að fjármálaráðuneytið afgreiði húsnæðismál Eyglóar

eygl.jpg
Auglýsing

Fjár­mála­ráðu­neytið seg­ist von­ast til þess að lokið verði við kostn­að­ar­mat á frum­varpi Eyglóar Harð­ar­dóttur um hús­næð­is­bætur í lok þess­arar viku. Hitt frum­varp hennar sem beðið hefur ver­ið, um stofn­fram­lög til leigu­fé­laga, verður hins vegar ekki til­búið strax. Þetta kemur fram í svari fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mál­ið. Miðað við starfs­á­ætlun Alþingis verður að telj­ast afskap­lega ólík­legt að málin tvö verði kláruð án þess til þing verði lengt.

„Ráðu­neytið er að fara yfir ýmsar spurn­ingar og álita­mál sem hafa vaknað í tengslum við þessi áform og hefur verið að afla upp­lýs­inga og talna­efnis sem hefur vantað fyrir áhrifa­mat­ið. Gert er ráð fyrir að fara þurfi yfir hluta af þeim álita­efnum með félags- og hús­næð­is­mála­ráðu­neyt­inu í vik­unn­i,“ segir í svari fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans. „Von­ast er til að hægt verði að ganga frá nið­ur­stöðum og ljúka við umsögn um frum­varp um hús­næð­is­bætur í þess­ari viku en meiri vinna er eftir í grein­ingu á frum­varpi um stofn­fram­lög til leigu­fé­laga.“

Lengi beðið eftir frum­vörp­unum



Frum­vörpin tvö sem um ræðir áttu upp­haf­lega að koma fram á haust­þingi. Þegar ljóst varð að svo yrði ekki átti frum­varp um hús­næð­is­bætur að koma fram ekki síðar en 27. febr­úar og frum­varp til laga um hús­næð­is­mál, um stofn­fram­lög til leigu­fé­laga, eigi síðar en 26. mars, sem var síð­asti dagur til að leggja fram mál á Alþingi. Tvö önnur frum­vörp Eyglóar um hús­næð­is­mál, frum­varp um hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög og um breyt­ingar á húsa­leigu­lög­um, áttu einnig að vera komin fram fyrir þennan frest en það náð­ist ekki. Þau frum­vörp eru komin inn í þingið með afbrigðum og umræða um húsa­leigu­lög hófst á Alþingi í dag.

Eftir dag­inn í dag eru aðeins ell­efu funda­dagar eftir á Alþingi sam­kvæmt starfs­á­ætl­un, auk eld­hús­dags. Fundir eru í þing­inu á morgun og á fimmtu­dag en að þeim loknum verður ekki aftur þing­fundur fyrr en mánu­dag­inn 11. maí, þar sem næsta vika er nefnda­vika í þing­inu. Þá verða níu þing­funda­dagar eft­ir.

Auglýsing

Frum­varp um stofn­fram­lög til leigu­fé­laga verður því ekki til­búið til að koma inn í þingið fyrr en í fyrsta lagi 11. maí. Ef hægt verður að ganga frá frum­varpi um hús­næð­is­bætur í lok þess­arar viku á enn jafn­framt eftir að koma því inn í þingið og ræða þarf bæði frum­vörpin í þremur umræð­um.

Frum­vörpin hafa einnig verið nefnd sem ein­hvers konar inn­legg stjórn­valda inn í kjara­deil­urn­ar. Eygló Harð­ar­dóttir hefur sagt að Alþingi þurfi ein­fald­lega að starfa eins lengi og þarf til þess að klára þessi mál og ef ein­hvern tím­ann væri til­efni til að halda sum­ar­þing væri það nú. „Allur vinnu­mark­að­ur­inn er undir og við verðum að afgreiða þessi mál áður en Alþingi fer í frí,“ sagði hún við Frétta­blaðið 27. mars síð­ast­lið­inn. Um miðjan apríl sagði hún hins vegar í við­tali við Við­skipta­blaðið að frum­vörpin verði lögð fram á næsta haust­þingi ef það tekst ekki á þessu þingi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None