Er fjármagnstekjuskattur alltaf óhagkvæmur?

Emil Dagsson ræðir við Arnald Sölva Kristjánsson um hagkvæma skattheimtu í Ekon, nýjum viðtalsþætti um hagfræðileg málefni. Samkvæmt honum er ekki auðséð að viðtekin viðhorf um að skattur á fjármagn sé óhagkvæmur standist í öllum tilvikum.

Arnaldur Sölvi Kristjánsson, hagfræðingur hjá ASÍ, og Emil Dagsson, doktorsnemi í hagfræði við HÍ.
Arnaldur Sölvi Kristjánsson, hagfræðingur hjá ASÍ, og Emil Dagsson, doktorsnemi í hagfræði við HÍ.
Auglýsing

Við­tekin við­horf um að skattur á fjár­magn sé alltaf óhag­kvæmur stand­ast ekki ef ein­stak­lingar eru mis­fram­leiðnir á vinnu­mark­aði, hafa mis­mikla getu til fjár­fest­inga og að þeir fjár­festa. Þetta eru nið­ur­stöður fræði­greinar sem Arn­aldur Sölvi Krist­jáns­son, hag­fræð­ingur hjá ASÍ hefur skrifað um hag­kvæma skatt­heimtu.

Arn­aldur er fyrsti við­mæl­and­inn í þátta­röð­inni Ekon, þar sem hag­fræð­ing­ur­inn Emil Dags­son fær til sín sér­fræð­inga úr ýmsum áttum til að fjalla um hag­fræði­leg mál­efni ásamt mál­efnum tengdum íslenskum efna­hag. Þátt­inn má sjá í spil­ar­anum hér að neð­an, auk þess sem hlusta má á hann í Hlað­varpi Kjarn­ans.

Sam­kvæmt honum sýndu nið­ur­stöður eldri fræði­greina að fjár­magnstekju­skattur væri alltaf óhag­kvæm leið til að draga ójöfn­uði. Þessar nið­ur­stöður höfðu svo áhrif á almenn við­horf til slíkrar skatt­lagn­ing­ar, en skattur á fjár­magn er nú tölu­vert lægri en tekju­skattur víða um heim.

Auglýsing

Í eldri greinum var búist við því að arð­semi af fjár­fest­ingum væri gef­in, svo ein­stak­lingar gátu vænst þess að græða jafn­mikið og aðrir af fjár­fest­ingum sín­um. Arn­aldur gerði aftur á móti ráð fyrir því í grein sinni að fjár­fest­ingar væru misarð­bærar eftir ein­stak­lingum og að það krefð­ist vinnu og fjár­mála­læsi til að halda uppi góðri ávöxtun á sínum fjár­mun­um. Ef sú for­senda er tekin með í útreikn­ingum fæst að fjár­magnstekju­skattur er ekki alltaf óhag­kvæm­ur, þvert á fyrri nið­ur­stöð­ur.

Sjálfur hefur Arn­aldur feng­ist mikið við tekju­skipt­ingu í sínum rann­sóknum og þá einkum frá sjón­ar­hóli skatt­kerf­is­ins. Hann er með dokt­ors­gráðu í hag­fræði frá Osló­ar­há­skóla en starfar nú sem hag­fræð­ingur hjá ASÍ.

Þætt­irnir Ekon eru styrktir af Háskóla Íslands, sem styður vís­inda­menn til virkrar þátt­töku í sam­fé­lag­inu í krafti rann­sókna þess og sér­þekk­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent