Er fjórflokkurinn kominn í útrýmingarhættu?

Motm--lendur-vi---Al--ingish--si---1.jpg
Auglýsing

Píratar mæl­ast nú langstærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins. Flokk­ur­inn mælist með ríf­lega 30 pró­senta fylgi, á meðan nær allir aðrir flokkar á þingi tapa fylgi, og hefur sexfaldað fylgi sitt frá því að talið var upp úr köss­unum í síð­ustu Alþing­is­kosn­ing­um. Fylg­is­aukn­ing Pírata er með miklum ólík­ind­um, eða hvað?

Fylgis­tap rík­is­stjórn­ar­innar er auð­skilið enda leng­ist tossa­listi henn­ar ­nán­ast dag frá deg­i. Hvert stór­málið á fætur öðru bíður skips­brot, og nægir þar að nefna nátt­úrupass­ann, nýtt frum­varp um fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­ið, hús­næð­is­mála­frum­vörpin og Fiski­stofu-f­íaskóið að ógleymdri leið­rétt­ing­unni víð­fræg­u ­sem gufaði upp eins og prumpu­lykt.

Þó Katrín Jak­obs­dóttir sé vin­sæl­asti stjórn­mála­maður lands­ins, virð­ast kjós­endur ekki treysta flokknum hennar til góðra verka, Sam­fylk­ingin er í rugl­inu, sam­bands­laus, með laskaðan for­mann eftir mis­heppn­aða hall­ar­bylt­ingu og til­þrifa­leysi Bjartrar fram­tíðar er algjört, enda fylgi flokks­ins í frjálsu falli.

Kjós­endur virðast end­an­lega hafa gef­ist upp á fjór­flokknum (og þar er Björt fram­tíð talin með), í bili að minnsta kosti, enda hefur sam­fé­lagið tekið miklum breyt­ingum frá þeim tíma þegar flokka­kerfið var á sínu blóma­skeiði.

Auglýsing

Kjós­endur vilja eitt­hvað annað núna. Eru Píratar eitt­hvað ann­að? Þó langt sé í næstu kosn­ingar eru nú þegar uppi sterkar vís­bend­ing­ar um að fjór­flokk­ur­inn sé kom­inn á síð­asta sölu­dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None