ESB: Heilbrigðiskerfi aðildarríkja verða ekki markaðsvædd af okkur

cecila.000.jpg
Auglýsing

Evr­ópu­sam­bandið (ESB) ætlar ekki að taka þátt í gerð við­skipta­samn­inga sem mark­aðsvæða grunn­þjón­ustu í heil­brigð­is­kerfum aðild­ar­landa þess. Ákvörðun um skref í þá átt séu alfarið í höndum aðild­ar­ríkj­anna sjálfra. Slík skref verði hins vegar ekki stigin á vett­vangi sam­bands­ins né í við­skipta­samn­ingum sem það gerir fyrir hönd sinna aðild­ar­ríkja. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins sendi frá sér í gær­kvöldi vegna leka á, og umfjöll­unar um, til­lögu Tyrk­lands um við­auka við TISA-­samn­ing­inn svo­kall­aða.

Til­laga Tyrkja snérist um að auka sam­keppni um heil­brigð­is­þjón­ustu á milli landa með því að mark­aðsvæða þjón­ust­una. Kjarn­inn hefur birt fréttir sem byggja á gögn­unum und­an­farna daga en hann tók þátt í birt­ingu þeirra í sam­starfi við Associ­ated Whist­leblowing Press (AWP) og fjöl­miðla víðs­vegar um heim­inn. Kjarn­inn var eini íslenski fjöl­mið­ill­inn sem var hluti af því sam­starfi.

Ætla sér ekki að hætta gæðum heil­brigð­is­kerfa



Í til­kynn­ingu fram­kvæmda­stjórn­ar­innar segir að Evr­ópu­sam­bandið hafi ekki, og ætli sér ekki, að taka neinar skuld­bind­andi ákvarð­an­ir ­sem varða grunn­heil­brigð­is­þjón­ustu sem er fjár­mögnuð með opin­beru fé í þeim við­skipta­samn­inga­við­ræðum sem það tekur þátt í, þar með talið TISA. „Evr­ópu­sam­bandið hefur alltaf und­ir­strikað skuld­bind­ingu sína gagn­vart því að verja opin­bera þjón­ustu á öllum stigum stjórn­sýsl­unn­ar[...]Allar ákvarð­anir um að afreglu­væða, einka­væða eða færa slíka þjón­ustu á einka­markað er algjör­lega undir rík­is­stjórnum þjóða kom­ið[...]Við­skipta­samn­ingar Evr­ópu­sam­bands­ins munu ekki breyta því; TISA mun ekki breyta því, né mun TISA krefj­ast þess að rík­is­stjórnir Evr­ópu­sam­bands­ríkja eða heil­brigð­is­kerfi þeirra setji neitt á mark­að“.

Cecila Malm­ström, fram­kvæmda­stjóri við­skipta hjá Evr­ópu­sam­band­inu, segir á sama vett­vangi að hún vilji taka allan vafa af um að hún myndi „aldrei leggja til við­skipta­sam­komu­lag sem fæli í sér ákvæði um flytj­an­leika heil­brigð­is­þjón­ustu.  Ég lít ekki á hana sem við­skipta­legt við­fangs­efni og Fram­kvæmda­stjórnin mun ekki hætta hinum miklu gæðum sem heil­brigð­is­kerfin okkar búa yfir í við­skipta­samn­ing­i“.

Auglýsing

Ísland tekur þátt



Ís­land er eitt þeirra 50 landa sem er aðili að TISA-við­ræð­un­um, sem eiga að auka frelsi í þjón­ustu­við­skiptum milli landa og því vöktu fréttir um til­lögu Tyrkja mikla athygli hér­lendis þegar þær birt­ust á mið­viku­dag.

Utan­rík­is­ráðu­neytið sendi frá sér til­kynn­ingu strax um kvöldið þar sem fram kom að Ísland telji ekki að við­auk­inn, sem Tyrk­land lagði fram í sept­em­ber síð­ast­liðn­um, ætti heima í TISA-­samn­ingn­um.

katajaknytt (1) Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, spurði Krist­ján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra út í TISA-­málið á Alþingi í gær.

 

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, spurði Krist­ján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra út í málið á Alþingi í gær. Þar sagð­i Krist­ján að eng­inn starfs­maður vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins hafi haft aðkomu að TISA-við­ræð­un­um, hann hafi ekk­ert heyrt um til­lögu um við­auka við samn­ing­inn sem í fólst að fella mark­aðsvæð­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu undir hann og að afstaða Íslands til þessa hafi ekki verið borin undir hann.

Aðspurður um leynd­ina sem hvílir yfir samn­ings­gerð­inni og hvort hann væri sam­mála þeirri afstöðu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins að taka ekki þátt í við­ræðum um við­auk­ann sagði Krist­ján: „Það er margt á huldu í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og utan­rík­is­mál­um. Það er alveg á hrein­u.“ Hann hafi hins vegar engar for­sendur til að tjá sig um eða taka afstöðu til máls sem hann þekki ekki „hæt­is­hót“ til.

Utan­rík­is­ráðu­neytið sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær­kvöldi þar sem þessu var hafn­að. Þar kom fram að utan­rík­is­ráðu­neytið upp­lýsti vel­ferð­ar­ráðu­neytið um fram­lagn­ingu til­lögu að við­auka við TISA-­samn­ing­inn sem í felst mikil mark­aðsvæð­ing á heil­brigð­is­þjón­ustu. Þetta gerði ráðu­neytið þann 6. jan­úar síð­ast­lið­inn. Um leið var boðað til sam­ráðs­fundar um TISA-við­ræð­urnar með öllum tengiliðum í fagráðu­neytum til að fara yfir stöðu við­ræðn­anna. Full­trúi vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins tók þátt í þeim fundi, en hann fór fram 14. jan­úar 2015.

Næsta samn­ingslota í TISA-við­ræð­un­um, sú tíunda, fer fram í næstu viku.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None