ESB sagt ræða möguleikann á greiðslufalli Grikkja í fyrsta sinn

eu-1.jpg
Auglýsing

Leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ins hafa í fyrsta sinn form­lega rætt þann mögu­leika að greiðslu­fall verði hjá Grikkj­um. Reuters greinir frá þessu og segir að þetta hafi verið rætt á und­ir­bún­ings­fundi fyrir fund fjár­mála­ráð­herra evru­ríkj­anna sem fer fram í næstu viku.

Reuters segir að þrír mögu­leikar hafi verið ræddir varð­andi lausn á skulda­málum Grikkja. Ólík­leg­asta nið­ur­staðan er talin vera að kom­ist verði að nýju sam­komu­lagi milli Grikkja og lán­ar­drottna þeirra á réttum tíma svo þeir geti staðið við skuld­bind­ingar sínar eftir að núver­andi sam­komu­lag rennur út í lok mán­að­ar. Annar mögu­leik­inn er að kom­ist verði að sam­komu­lagi um að fram­lengja núver­andi sam­komu­lag, sem rennur út á sama tíma og Grikkir eiga að borga 1,6 millj­arð evra til Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins.

Þriðji mögu­leik­inn, sem var ræddur í fyrsta skipti nú að sögn Reuters, er að Grikk­landi verði leyft að fara í greiðslu­fall.

Auglýsing

Flestir emb­ætt­is­menn­irnir á fund­inum eru sagðir hafa haldið því fram að ólík­legt sé að sam­komu­lag náist um umbætur sem Grikkir eiga að ráð­ast í til að fá áfram­hald­andi neyð­ar­lán frá AGS og ESB. „Það myndi krefj­ast mik­illa fram­fara á nokkrum dögum sem ekki hafa náðst á mörgum vik­um,“ hefur Reuters eftir ónefndum emb­ætt­is­manni.

Grikkir eru hins vegar sagðir ætla að gera allt sem þeir geta til að ná sam­komu­lagi í tíma. Í eft­ir­mið­dag­inn bár­ust fréttir af því að grísk stjórn­völd séu á leið til Brus­sel þar sem fundað verði í fyrra­mál­ið. Grikkir séu nú til­búnir að koma fram með nýjar til­lögur að umbótum og að aldrei hafi aðil­arnir verið nær sam­komu­lagi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None