„Faðir hrefnuveiðimanns vill auka hvalveiðar“

mynd.jpg
Auglýsing

Það var vissu­lega óvænt ánægja að heyra G­unnar Braga Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra, tala fyrir end­ur­skoðun á hval­veiði­stefnu Íslend­inga á dög­un­um. Ráð­herr­ann segir Íslend­inga litna horn­auga á alþjóð­legum vett­vangi fyrir hval­veið­arnar og að full­trúum þjóð­ar­innar sé ekki boðið á suma fundi og ráð­stefnur um mál­efni hafs­ins sökum þessa.

„Við eigum ekki að gefa eftir rétt­inn til að nýta þessa auð­lind frekar en hverja aðra. En það er umhugs­un­ar­efni fyrir okkur hvort við ættum ekki að koma til móts við alþjóða hval­veiði­ráðið til að mynda með því að veiða færri hvali árlega en við gerum nú,“ sagði Skag­firð­ing­ur­inn óvenju hóf­stilltur og skyn­samur í fjöl­miðl­um.

En viti menn. Eins og svo oft áður þegar umræðan hefur daðrað við end­ur­skoðun á hval­veið­u­m við Ísland, þá spratt Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og for­maður atvinnu­vega­nefndar Alþing­is, á fætur og varði hval­veið­arnar með kjafti og klóm. Og ekki nóg með það, því hann vill auka veið­arnar líka.

Auglýsing

Eins og fram hefur kom­ið er sonur for­manns atvinnu­vega­nefnd­ar hrefnu­veiði­maður og útgerð­ar­mað­ur­ og er, eða var að minnsta kosti um tíma, for­maður Félags hrefnu­veiði­manna. Nú mætti spyrja hvort Jón Gunn­ars­son telji sig ítrekað hæfan til að tjá sig um hval­veiðar á opin­berum vett­vang­i í ljósi þessa, eða er jafn grímu­laus hags­muna­gæsla bara í lagi? Væri ekki bara smekk­legra að berj­ast fyrir hags­munum sonar síns á bak­við tjöld­in?

Pæl­ing dags­ins er hluti af dag­legum frétta­pósti Kjarn­ans, þar sem farið er yfir það helsta í inn­lendum og erlendum frétt­um. Í pæl­ingu dags­ins er athygl­is­verðum hlutum velt upp.

Frétta­póstur Kjarn­ans kemur í póst­hólfið þitt á hverjum morgni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None