Einungis 14 prósent reiðhjóla í reiðhjólaverslunum uppfylla reglugerð um skyldubúnað. Á síðustu árum hefur hjólum búin öllum skyldubúnaði fækkað mikið í verslunum en þess í stað er skyldubúnaðurinn seldur sér. Félagið Brautin, bindindisfélag ökumanna, hefur fylgst með þróuninni frá árinu 2005 og sýnir könnun þeirra að reiðhjólasalar stóðu sig best árið 2011. Þá voru 71 prósent reiðhjóla lögleg í verslunum, samanborið við aðeins 14 prósent í ár. Mestu munar um að fæst hjól eru seld með bjöllu, en lás er frátalinn.
„Krafan um skyldubúnað reiðhjóla er skýr en margir reiðhjólasalar telja sig ekki bera ábyrgð á því að selja lögleg hjól heldur sé það viðskiptavinarins að bæta við þeim skyldubúnaði sem þarf til að gera það löglegt. Í raun ætti ábyrgðin að vera hjá þeim sem selur hjólið þar sem hann er sérfræðingurinn í búnaði reiðhjóla en ekki hinn almenni viðskiptavinur,“ segir í samantekt um könnunina frá Brautinni.
Brautin, bindindisfélag ökumanna, kannaði öryggisbúnað á nýjum reiðhjólum.
Fram kemur að reglugerð um búnað reiðhjóla sé orðin gömul, eða frá árinu 1994. Þar eru tilgreindir sjö hlutir sem eiga að vera á reiðhjólum. Það eru bjalla, glitmerki að framan og aftan, teinaglit, glit á fótstigi, fram- og afturbremsur, keðjuhlíf og lás. „Nú er reglugerðin í endurskoðun og liklegt að sú nýja taki nokkurt mið af dönskum reglum en þaru kröfur um skyldubúnað örlítið minni en gert er ráð fyrir hér á landi í dag. Samkvæmt henni verða ekki gerðar kröfur um lás og keðjuhlíf en allt annað skuli vera á þeim reiðhjólum sem notuð eru í umferð óháð notkun. Þó má létta reiðhjól í keppni með því að taka af skyldubúnað tímabundið,“ segir í tilkynningu Brautarinnar, sem hefur lagt til að nýja reglugerðin kveði á um ábyrgð reiðhjólasala og að þeir selji lögleg reiðhjól út úr verslunum. Einar Guðmundsson er formaður Brautarinnar.
„Í ljósi aukinnar hjólanotkunar telur Brautin-bindindisfélag ökumanna enn brýnna að yfirvöld fari að taka á þessum vanda og er það skýlaus réttur viðskiptavina að þegar þeir koma og versla sér vöru þá sé hún lögleg. Það á ekki að gilda eitthvað annað þegar um reiðhjól er að ræða. Best væri að reiðhjólasalar tækju þessu alvarlega og sýndu fram á að þeirra hjól væru lögleg og hefðu allan skyldubúnað á þeim.“
Brautin, bindindisfélag ökumanna, kannaði öryggisbúnað á nýjum reiðhjólum.
Myndin hér að ofan sýnir á hversu mörgum hjólum grunnatriðin voru í lagi. Í 14 prósent tilvika var öllum skilyrðum uppfyllt og í 42 prósent tilvika var sex af sjö skilyrðum uppfyllt. Um þriðjung hjólanna vantaði um helming af þeim skyldubúnaði sem á að vera á reiðhjólum í dag.