Fæst ný reiðhjól eru lögleg - Skyldubúnaður er seldur sér

14317566179_6950ed0f9b_b.jpg
Auglýsing

Ein­ungis 14 pró­sent reið­hjóla í reið­hjóla­versl­unum upp­fylla reglu­gerð um skyldu­bún­að. Á síð­ustu árum hefur hjólum búin öllum skyldu­bún­aði fækkað mikið í versl­unum en þess í stað er skyldu­bún­að­ur­inn seldur sér. Félagið Braut­in, bind­ind­is­fé­lag öku­manna, hefur fylgst með þró­un­inni frá árinu 2005 og sýnir könnun þeirra að reið­hjóla­salar stóðu sig best árið 2011. Þá voru 71 pró­sent reið­hjóla lög­leg í versl­un­um, sam­an­borið við aðeins 14 pró­sent í ár. Mestu munar um að fæst hjól eru seld með bjöllu, en lás er frá­tal­inn.

„Krafan um skyldu­búnað reið­hjóla er skýr en margir reið­hjóla­salar telja sig ekki bera ábyrgð á því að selja lög­leg hjól heldur sé það við­skipta­vin­ar­ins að bæta við þeim skyldu­bún­aði sem þarf til að gera það lög­legt.  Í raun ætti ábyrgðin að vera hjá þeim sem selur hjólið þar sem hann er sér­fræð­ing­ur­inn í bún­aði reið­hjóla en ekki hinn almenni við­skipta­vin­ur,“ segir í sam­an­tekt um könn­un­ina frá Braut­inni.

Auglýsing

Brautin, bindindisfélag ökumanna, kannaði öryggisbúnað á nýjum reiðhjólum. Braut­in, bind­ind­is­fé­lag öku­manna, kann­aði örygg­is­búnað á nýjum reið­hjól­u­m.

Fram kemur að reglu­gerð um búnað reið­hjóla sé orðin göm­ul, eða frá árinu 1994. Þar eru til­greindir sjö hlutir sem eiga að vera á reið­hjól­um. Það eru bjalla, glit­merki að framan og aft­an, tei­naglit, glit á fót­stigi, fram- og aft­ur­brems­ur, keðju­hlíf og lás. „Nú er reglu­gerðin í end­ur­skoðun og lik­legt að sú nýja taki nokk­urt mið af dönskum reglum en þaru kröfur um skyldu­búnað örlítið minni en gert er ráð fyrir hér á landi í dag.  Sam­kvæmt henni verða ekki gerðar kröfur um lás og keðju­hlíf en allt annað skuli vera á þeim reið­hjólum sem notuð eru í umferð óháð notk­un. Þó má létta reið­hjól í keppni með því að taka af skyldu­búnað tíma­bund­ið,“ segir í til­kynn­ingu Braut­ar­inn­ar, sem hefur lagt til að nýja reglu­gerðin kveði á um ábyrgð reið­hjóla­sala og að þeir selji lög­leg reið­hjól út úr versl­un­um. Einar Guð­munds­son er for­maður Braut­ar­inn­ar.



„Í ljósi auk­innar hjóla­notk­unar telur Braut­in-bind­ind­is­fé­lag öku­manna enn brýnna að yfir­völd fari að taka á þessum vanda og er það ský­laus réttur við­skipta­vina að þegar þeir koma og versla sér vöru þá sé hún lög­leg. Það á ekki að gilda eitt­hvað annað þegar um reið­hjól er að ræða.  Best væri að reið­hjóla­salar tækju þessu alvar­lega og sýndu fram á að þeirra hjól væru lög­leg og hefðu allan skyldu­búnað á þeim.“

Brautin, bindindisfélag ökumanna, kannaði öryggisbúnað á nýjum reiðhjólum. Braut­in, bind­ind­is­fé­lag öku­manna, kann­aði örygg­is­búnað á nýjum reið­hjól­u­m.

Myndin hér að ofan sýnir á hversu mörgum hjólum grunn­at­riðin voru í lagi. Í 14 pró­sent til­vika var öllum skil­yrðum upp­fyllt og í 42 pró­sent til­vika var sex af sjö skil­yrðum upp­fyllt. Um þriðj­ung hjól­anna vant­aði um helm­ing af þeim skyldu­bún­aði sem á að vera á reið­hjólum í dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None