Fangelsismálastjóri hafnar ásökunum um mannréttindabrot á Kaupþingstoppum

sigurdur_og_olafur.jpg
Auglýsing

„Það að synja refsi­fanga um bíl­stjóra og bíl til að aka í sex tíma á hverjum degi í fimm vikur er ekki mann­rétt­inda­brot, heldur full­kom­lega eði­leg vinnu­brögð. Það að ein­hverjum lög­manni hins vegar detti í hug að til­teknir fangar geti borgað fyrir umfram­rétt­indi er í besta falli dóm­greind­ar­skortur og til marks um þekk­ing­ar­leysi á því hvernig okkar fulln­ustu­kerfi, og reyndar hjá öðrum sið­mennt­uðum þjóðum virk­ar.“

Þetta segir Páll Win­kel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­un­ar, í sam­tali við frétta­stofu RÚV. Þar bregst Páll harð­lega við ásök­unum Gests Jóns­son­ar, verj­anda Sig­urðar Ein­ars­sonar sak­born­ings í mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings, um að fang­els­is­mála­yf­ir­völd hafi brotið á mann­rétt­indum skjól­stæð­ings hans. Á Sig­urði væri brotið með því að gera honum ekki kleift að fylgj­ast með rétt­ar­höld­unum yfir sér, nema með því að vera vistaður í Hegn­ing­ar­hús­inu við Skóla­vörðu­stíg.

Hreiðar Már vildi fá að borga fyrir bíl­ferð­irnar sínar



Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, sem nú afplánar fang­els­is­dóm á Kvía­bryggju ásamt Sig­urði Ein­ars­syni fyrir aðild að Al-T­hani mál­inu svo­kall­aða, kvart­aði sömu­leiðis á dög­unum undan því að honum hafi verið neitað um flutn­ing milli fang­els­is­ins og Reykja­víkur á meðan á rétt­ar­höld­unum stæði. Jafn­vel þó hann hafi boð­ist til að standa straum af kostn­aði við bíl­ferð­irn­ar.

Í sam­tali við RÚV segir for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar að pen­ingar gangi ekki sem gjald­mið­ill hjá stofn­un­inni, heldur hegðun og fram­koma. „Að þeim auð­ævum hafa allir fangar jafnt aðgengi, háir sem lágir, ríkir sem fátæk­ir.“

Auglýsing

Hið ­sama gildir um alla



Verj­andi Sig­urðar Ein­ars­sonar gagn­rýndi sömu­leiðis að skjól­stæð­ingur sinn hafi verið nauð­beygður til að gista í Hegn­ing­ar­hús­inu, ella missa af rétt­ar­höld­unum yfir sér­. ­Skjól­stæð­ingur sinn væri ekki ungur mað­ur, heilsa hans kannski ekki nógu góð og úti­lokað að hann næði að hvíl­ast í Hegn­ing­ar­hús­inu.

Í áður­nefndri frétt RÚV er haft eftir for­stjóra Fang­els­is­mála­stofn­unar vegna þessa: „Við höfum verið þar með fanga vistaða sem eru fæddir 1918, 1929. Þetta hefur gengið fyrir alla. [...] Frá árinu 1873 hafa allir fangar sem hafa verið við­staddir aðal­með­ferð í Reykja­vík verið vistaðir í fang­els­unum í Reykja­vík. Það hafa allir fangar getað hingað til og gera þar til annað fang­elsi tekur við. Svo ein­falt er það.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None