Félagsmálaráðherra fagnar ákvörðun héraðsdóms í máli Husseins

Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra sagðist í ræðustóli Alþingis leyfa sér að fagna niðurstöðunni í máli Hussein Hussein og að hann teldi að tryggja þyrfti að umsókn hans um vernd fengi efnismeðferð hér á landi.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Auglýsing

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra var spurður út nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í máli Hussein Hussein á í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag og sagð­ist ætla að leyfa sér að „fagna því að þetta sé nið­ur­staða hér­aðs­dóms,“ og að hans mati þyrfti að „tryggja að þessi ein­stak­lingur fái hér efn­is­með­ferð, að sjálf­sögðu, eins og hann á rétt á sam­kvæmt nið­ur­stöðu dóm­stóla“.

„Ég geri ráð fyrir að það verði tryggt, en auð­vitað ef þar til gerð stjórn­völd ákvað að áfrýja mál­inu snýr það aðeins öðru­vísi við,“ sagði Guð­mundur Ingi sínu í svari við fyr­ir­spurn Arn­dísar Önnu K. Gunn­ar­dóttur þing­manns Pírata, sem spurði ráð­herra að því hvernig honum hefði liðið með að „þurfa að verja ákvörðun og fram­kvæmd sem var ólög­mæt“ og hvort hann treysti Jóni Gunn­ars­syni dóms­mála­ráð­herra fyrir þessum mála­flokki, í ljósi nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms.

„Ég ætla að leyfa mér að fagna því að þetta sé nið­ur­staða hér­aðs­dóms, því að mér finnst eðli­legt að tekið sé til­lit til fötl­unar fólks í mál­efnum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd og þegar við höfum öll haft tæki­færi til að kynna okkur þennan dóm held ég að það verði áhuga­vert að sjá á hvaða máls­at­vikum það er sem hér­aðs­dómur byggir sína nið­ur­stöðu. En út frá því sem brjóst­vitið segir okkur gæti þar verið um mik­il­vægi samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks að ræða en erfitt að full­yrða eitt eða neitt um það hér úr ræðu­stól þegar maður hefur ekki haft tæki­færi til að lesa yfir dóminn,“ sagði Guð­mundur Ingi í ræðu­stól.

Auglýsing

Spurn­ingum Arn­dísar Önnu um hvernig hvernig þótt að verja þá ákvörðun sem nú hefur verið felld úr gildi og hvort hann treysti ráð­herra dóms­mála til þess að fara með mála­flokk­inn lét Guð­mundur Ingi ósvar­að.

Skoða ætti aðstæður í Grikk­landi

Er Arn­dís Anna kom aftur í pontu spurði hún hvaða lær­dóm hann teldi að rík­is­stjórnin ætti að draga af þessu máli og hvort ástæða væri til þess að end­ur­skoða þá stefnu rík­is­stjórn­ar­innar að „vísa fötl­uðu fólki jafnt sem nýfæddum börnum á göt­una í Grikk­land­i.“

Í svari sínu sagði Guð­mundur Ingi að aðilum greindi á um það, svo ekki væri minna sagt, um hvort aðstæður í Grikk­landi væru þess eðlis að for­svar­an­legt væri að senda fólk þang­að, og að hann teldi að gera ætti skoðun á því hvernig aðstæður flótta­fólks í Grikk­landi væru.

„Þegar maður stendur frammi fyrir við­fangs­efni, þar sem skiptar skoð­anir og kannski mis­mun­andi rök­stuðn­ingur er fyr­ir, eins og í þessu til­felli hvort það eigi að senda eða ekki senda, þá finnst mér að það sé í hlut­verki stjórn­valda að ganga úr skugga um hvort svo sé. Ég held líka að við þurfum að horfa til þess þegar teknar eru ákvarð­anir varð­andi brott­vís­un, og mál eru enn inni í kerf­inu þrátt fyrir að það séu búin í hinni stjórn­sýslu­legu með­ferð, t.d. fyrir dóm­stól­um, hvort að þar sé um mögu­lega for­dæm­is­gef­andi mál að ræða eða ekki,“ sagði Guð­mundur Ingi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent