Ferðamenn til Íslands á árinu orðnir fleiri en ein milljón

14309725868_8cccec7146_b.jpg
Auglýsing

Fjöldi ferða­manna sem hafa heim­sótt Ísland það sem af er ári er kom­inn yfir eina millj­ón. Það þýðir að fleiri ferða­menn heim­sóttu landið á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2015 en gerðu það allt árið 2014, sem þó var metár. Straumur ferða­manna hefur auk­ist alla mán­uði árs­ins, frá 23,4 til 34,5 pró­sent. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum frá Ferða­mála­stofu Íslands.

Um 123 þús­und erlendir ferða­menn fóru frá land­inu í sept­em­ber síð­ast­liðnum sam­kvæmt taln­ingum Ferða­mála­stofu í Flug­stöð Leifs Eiríks­sonar eða 35 þús­und fleiri en í sept­em­ber á síð­asta ári. Aukn­ingin nemur 39,4 pró­sent milli ára og hefur hún ekki mælst svo há milli ára í sept­em­ber frá því Ferða­mála­stofa hóf taln­ing­ar.

Í til­kynn­ingu frá Ferða­mála­stofu segir að 71 pró­sent ­ferða­manna í sept­em­ber síð­ast­liðnum hafi ver­ið af tíu þjóð­ern­um. Banda­ríkja­menn voru fjöl­menn­astir eða 22,7 pró­sent af heild­ar­fjölda og næst­fjöl­menn­astir voru Þjóð­verjar (10,3 pró­sent) og Bretar (10,3 pró­sent). Þar á eftir fylgdu síðan Kanada­menn (5,5 pró­sent), Norð­menn (4,5 pró­sent), Frakkar (4,1 pró­sent), Danir (4,0 pró­sent), Svíar (3,7 pró­sent), Kín­verjar (3,5 pró­sent) og Spán­verjar (2,8 pró­sent).

Auglýsing

"Af ein­staka þjóð­ernum fjölg­aði Banda­ríkja­mönn­um, Bret­um, Þjóð­verj­um, Kanada­mönnum og og Kín­verjum mest milli ára í sept­em­ber en 12.643 fleiri Banda­ríkja­menn komu í sept­em­ber í ár en í fyrra, 3.294 fleiri Bret­ar, 2.734 fleiri Þjóð­verjar, 2.347 fleiri Kanada­menn og 2.342 fleiri Kín­verj­ar. Þessar fimm þjóðir báru uppi 67,2% aukn­ingu ferða­manna í sept­em­ber. Dön­um, Norð­mönnum og Rússum fækk­aði hins vegar í sept­em­ber í ár frá því í fyrra," segir í til­kynn­ing­unni.

Flogið beint til Egils­staða



Fjölgun ferða­manna sem heim­sækja Íslands hefur verið gríð­ar­leg und­an­farin ár og er búist við því að heild­ar­fjöldi þeirra í ár verði um 1,3 millj­ón­ir. Allar spár gera ráð fyrir áfram­hald­andi fjölgun á næstu árum og á kynn­ingu á veg­vísi í ferða­mál­um, sem fram fór í gær, sagði Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, ráð­herra ferða­mála, að reiknað væri með að gjald­eyr­is­tekjur vegna ferða­mála yrðu 1.000 millj­arðar króna árið 2030. Þær eru áætl­aðar um 350 millj­arðar króna í ár.

Í dag var einnig til­kynnt um að beint flug milli London og Egils­staða, sem hefj­ast mun næsta sum­ar. Flogið verður tvisvar í viku á milli áfanga­stað­anna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None