Fimm þingmenn og fimm ráðherrar fara á þing Norðurlandaráðs

Aðal- og varamenn úr fyrri landsdeild Norðurlandaráðs sem hlotið hafa endurkjör fara á þing ráðsins sem haldið verður í næstu viku í Kaupmannahöfn.

Þingmenn á leið á þing Norðurlandaráðs 2021
Auglýsing

Þing Norð­ur­landa­ráðs verður haldið dag­ana 1. til 4. nóv­em­ber í Kaup­manna­höfn en þar koma saman þing­menn, for­sæt­is­ráð­herrar og aðrir ráð­herrar frá öllum Norð­ur­lönd­un­um. Auk þess verður Jens Stol­ten­berg fram­kvæmda­stjóri NATO gestur á þing­inu. Þingið var ekki haldið í fyrra vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Sam­kvæmt ákvörðun for­sætis­nefndar Alþingis mega aðal- og vara­menn úr fyrri lands­deild Norð­ur­landa­ráðs sem hlotið hafa end­ur­kjör fara á þing­ið. Þeir sem fara eru Oddný G. Harð­ar­dótt­ir, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, Stein­unn Þóra Árna­dótt­ir, þing­maður Vinstri grænna, og Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, sem er vara­maður og þing­maður Flokks fólks­ins.

Bryn­dís Har­alds­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins fer einnig á þingið sem full­trúi Vest­nor­ræna ráðs­ins og Willum Þór Þórs­son þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins fer til að hitta nor­rænna þing­for­seta sem funda alltaf í tengslum við þing­ið.

Auglýsing

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá rit­ara Íslands­deildar Norð­ur­landa­ráðs fara einnig á þingið Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG, Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Lilja Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra og þing­maður VG.

Alþingi ekki sett fyrr en und­ir­bún­ings­kjör­bréfa­nefnd hefur lokið störfum

Rúmur mán­uður er síðan alþing­is­kosn­ingar fóru fram hér á landi og standa nú yfir við­ræður milli Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins að mynda rík­is­stjórn á ný. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í sam­tali við RÚV í fyrra­dag að ljóst væri að Alþingi yrði ekki sett fyrr en und­ir­bún­ings­kjör­bréfa­nefnd hefði lokið störf­um. Mikil vinna hefur verið hjá nefnd­inni und­an­farið en nefnd­ar­með­limir rann­saka meðal ann­ars end­ur­taln­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

For­sæt­is­ráð­herra sagði við RÚV að það væri afar ólík­legt að ný rík­is­stjórn og nýr stjórn­ar­sátt­máli yrði kynntur fyrir þann tíma. Hún sagði við­ræður for­manna flokk­anna ganga vel.

„Hins vegar er alveg ljóst að þing verður ekki sett fyrr en und­ir­bún­ings­kjör­bréfa­nefnd hefur lokið störfum og þá vænt­an­lega skilað drögum að nið­ur­stöðu til kjör­bréfa­nefndar sem svo verður kosin þegar þing er sett,“ sagði hún.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent