Fyrsta kynhlutlausa vegabréfið gefið út í Bandaríkjunum

Kyn: X. Bandaríkin hafa nú bæst í þann stækkandi hóp ríkja sem gefið hafa út vegabréf með hlutlausri kynskráningu.

Bandaríkin hafa gefið út sitt fyrsta kynhlutlausa vegabréf.
Bandaríkin hafa gefið út sitt fyrsta kynhlutlausa vegabréf.
Auglýsing

Banda­ríkin hafa gefið út sitt fyrsta kyn­hlut­lausa vega­bréf, sam­kvæmt til­kynn­ingu sem barst frá utan­rík­is­ráðu­neyti lands­ins í dag. Kyn­hlut­leysi er táknað með bók­stafnum X í vega­bréf­inu. Stefnt er að því að bjóða almennt upp á hlut­lausa kyn­skrán­ingu í vega­bréfum þar í landi frá og með næsta ári.

AP-frétta­stofan greinir frá þessu í dag og segir þetta mik­inn áfanga í rétt­inda­bar­áttu þeirra sem ekki skil­greina sig sem annað hvort karl né konu vest­an­hafs.

Ekki fylgdi til­kynn­ingu stjórn­valda hver hefði fengið vega­bréfið útgef­ið. Sam­kvæmt frétt AP neit­aði ráðu­neytið að tjá sig um hvort vega­bréfið hefði verið útgefið fyrir Dönu Zzyym, inter­sex mann­eskju frá Kólóra­dó-­ríki sem hefur háð bar­áttu fyrir því að fá gefið út vega­bréf með hlut­lausri kyn­skrán­ingu allt frá árinu 2015, en af frétt­inni má lesa að það þyki lík­legt.

Hægt að fá kyn­hlut­laus vega­bréf á Íslandi frá því í jan­úar

Banda­ríkin feta með þessu skrefi í kjöl­far nokk­urra ann­arra ríkja sem hafa þegar byrjað að heim­ila hlut­lausa kyn­skrán­ingu á opin­berum per­sónu­skíl­ríkj­um. Ísland er eitt þeirra.

Auglýsing

Eftir að lög um um kyn­rænt sjálf­ræði, sem voru sam­þykkt sum­arið 2019, tóku gildi hefur verið heim­ilt óska eftir hlut­lausri kyn­skrán­ingu hjá Þjóð­skrá. Þjóð­skrá fékk 18 mán­aða frest til þess að upp­færa kerfi sín og aðlaga þau að hlut­lausri kyn­skrán­ingu og í upp­hafi þessa árs, nánar til tekið 6. jan­ú­ar, varð fyrst mögu­legt að sam­þykkja slíkar skrán­ing­ar.

Ein­stak­lingar með hlut­leysa kyn­skrán­ingu, sem í þjóð­skrá falla undir flokk­inn „Kynseg­in/ann­að“ hafa frá þeim degi getað sótt um að fá útgefin ný per­sónu­skíl­ríki, eins og vega­bréf, öku­skír­teini, nafn­skír­teini og fleira.

Sam­kvæmt ákvæðum laga um kyn­rænt sjálf­ræði skal ávallt tákna hlut­lausa skrán­ingu kyns í vega­bréfum með bók­stafnum X.

Á meðal ann­arra ríkja sem bjóða þegnum sínum upp á hlut­lausa kyn­skrán­ingu hjá hinu opin­bera og þar með í vega­bréfum eins og öðrum opin­berum per­sónu­skíl­ríkjum eru Argent­ína, Ástr­al­ía, Kana­da, Dan­mörk, Ind­land, Malta, Nepal, Nýja-­Sjá­land, Portú­gal og Pakist­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent