Katrín svarar Sigmundi Davíð – „Kynin samkvæmt lögum eru ekki lengur tvö“

Formaður Miðflokksins spurði forsætisráðherra fyrr í sumar hversu mörg kyn mannfólks væru, að mati ráðuneytis hennar. Í svari forsætisráðherra er bent á að í lögum um kynrænt sjálfræði sé kveðið á um óskoraðan rétt einstaklinga til að skilgreina kyn sitt.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Auglýsing

„Kynin sam­kvæmt lögum eru ekki lengur tvö, kona og karl, heldur opnar skil­grein­ingin á hug­tak­inu í lögum á þann mögu­leika að kyn séu fleiri.“

Þetta kemur fram í svari Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni for­manni Mið­flokks­ins um kyn. Hann spurði hversu mörg kyn mann­fólks væru, að mati ráðu­neyt­is­ins.

Í svar­inu er bent á að í lögum um kyn­rænt sjálf­ræði sé kveðið á um óskor­aðan rétt ein­stak­linga til að skil­greina kyn sitt.

Auglýsing

Skil­grein­ing kyns ræðst ekki ein­göngu af líf­fræði

„Sam­kvæmt sömu lögum er hlut­laus skrán­ing kyns heimil og ber aðilum sem skrá­setja kyn að gera ráð fyrir því að ein­stak­lingar geti skráð kyn sitt með þrennum hætti, kona, karl og kyn­hlut­laus. Hug­takið kyn er skil­greint í fram­an­greindum lögum sem „safn­hug­tak sem nær meðal ann­ars yfir kynein­kenni, kyn­gervi, kyn­vit­und og kyntján­ing­u“. Skil­grein­ing kyns ræðst því ekki ein­göngu af líf­fræði.

Sam­kvæmt fram­an­sögðu er opin­ber skrán­ing kyns sam­kvæmt lögum nú þrenns konar og opnar hlut­laus skrán­ing kyns á þann mögu­leika að ein­stak­lingur sem telur sig ekki falla undir hefð­bundna flokkun í konu eða karl geti nú skil­greint sig sem kyn­hlut­lausan sam­kvæmt opin­berum gögn­um,“ segir í svar­inu.

Þá kemur enn fremur fram hjá ráð­herra að frá 6. jan­úar 2021 hafi verið hægt að óska eftir hlut­lausri skrán­ingu kyns í þjóð­skrá. Í sam­vinnu við Sam­tökin ’78 hafi Þjóð­skrá Íslands ákveðið að ein­stak­lingar sem óska eftir hlut­lausri skrán­ingu kyns í þjóð­skrá skyldu skráðir „kynseg­in/ann­að“. Talið sé að um þetta heiti megi ná sem mestri sátt innan hinsegin sam­fé­lags­ins og að flestir ein­stak­lingar geti sam­samað sig því.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent