Fiskistofa fái heimildir til að beita þá sem trassa skýrsluskil 30.000 króna dagsektum

Hægt verður að beita þá útgerðaraðila sem ekki skila vigtar- og ráðstöfunarskýrslum til Fiskistofu 30 þúsund króna dagsektum, sem geta að hámarki orðið 1,5 milljónir, samkvæmt nýju frumvarpi matvælaráðherra.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.
Auglýsing

Svan­dís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra hefur lagt fram stjórn­ar­frum­varp um breyt­ingar á ýmsum lögum á sviði fisk­veiði­stjórn­ar, sem hefur það meðal ann­ars að mark­miði að styrkja eft­ir­lit Fiski­stofu.

Í frum­varp­inu, sem dreift var á Alþingi í gær, er kveðið á um að Fiski­stofa fái í ákveðnum til­vikum heim­ild til að setja á dag­sektir á þá sem van­rækja að veita stofn­un­inni upp­lýs­ingar sem við­kom­andi ber að veita. Þessar sektir hljóða upp á 30 þús­und krónur fyrir hvern byrj­aðan dag og geta hæstar orðið 1,5 millj­ónir króna, sem jafn­gildir 50 dag­sekt­ar­dög­um.

Sam­kvæmt frum­varp­inu yrði hægt að leggja þessar sektir á þá sem trassa það að skila Fiski­stofu vigt­ar- og ráð­stöf­un­ar­skýrslum og sér­stak­lega er hnykkt á því að þessar sektir falli ekki niður þátt fyrir að upp­lýs­ing­unum sé skilað inn um síð­ir.

Með frum­varp­inu stendur einnig til að auka gagn­sæi í störfum Fiski­stofu, með því að mæla skýrt fyrir um heim­ild Fiski­stofu til að birta opin­ber­lega ákvarð­anir um svipt­ingu veiði­leyfa og aft­ur­köllun vigt­un­ar­leyfa.

Auglýsing

„Miðar þetta að því að auka enn frekar gagn­sæi í störfum Fiski­stofu sem og fyr­ir­sjá­an­leika fyrir þá sem starfa í grein­inni og veita bæði þeim og Fiski­stofu til­hlýði­legt aðhald,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu.

Efldar heim­ildir til raf­ræns eft­ir­lits

Frum­varpið felur að auki í sér laga­breyt­ingar sem miða að því að styrkja heim­ildir Fiski­stofu til raf­ræns eft­ir­lits. Þannig er lagt til að „eft­ir­lits­mönnum Fiski­stofu verði heim­ill aðgangur að upp­lýs­ingum sem verða til við raf­ræna vöktun á lönd­un­ar­höfnum í þeim til­gangi að hafa eft­ir­lit með löndun afla“ og er þess getið að við eft­ir­litið þurfi að huga að lögum um per­sónu­vernd og gæta þess að eft­ir­lit sé í sam­ræmi við til­gang heim­ild­ar­inn­ar, að teknu til­liti til með­al­hófs.

Einnig eru lagðar til breyt­ingar á lögum um Fiski­stofu, sem miða að því að veita Fiski­stofu heim­ild til raf­ræns eft­ir­lits og heim­ild til vinnslu upp­lýs­inga. Að auki er lagt til að sett verði bráða­birgða­á­kvæði sem myndu „heim­ila Fiski­stofu að fara í sam­starf við útgerð­ar­að­ila um notkun mynda­véla um borð í fiski­skipum í eft­ir­lits­skyn­i.“

„Ra­f­rænt eft­ir­lit með mynda­vélum um borð í fisk­veiði­skipum til stuðn­ings við hefð­bundið eft­ir­lit með fisk­veiðum er kostn­að­ar­m­inna auk þess sem slík tæki til eft­ir­lits eru lík­leg til að draga úr brott­kasti vegna fæl­ing­ar­máttar slíks eft­ir­lits,“ segir um þetta atriði, í grein­ar­gerð frum­varps­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent