Fjáreignir fyrirtækja jukust um þrettán prósent

peningar_opt.jpg
Auglýsing

Fjár­eignir fyr­ir­tækja ann­arra en fjár­mála­fyr­ir­tækja juk­ust um þrettán pró­sent að nafn­virði á milli ára og stóðu í 4.390 millj­örðum króna í árs­lok 2013 sam­kvæmt nýupp­færðum tölum Hag­stofu Íslands. Á sama tíma lækk­uðu fjár­skuld­bind­ingar þeirra um sjö pró­sent og námu sjö þús­und millj­örðum króna. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu Hag­stofu Íslands.

Hreinar fjár­eignir fyr­ir­tækja ann­arra en fjár­mála­fyr­ir­tækja voru nei­kvæðar um 2.625 millj­arða króna, eða 140% af vergri lands­fram­leiðslu í lok árs 2013.

Auglýsing


„Hreinar fjár­eignir fjár­mála­fyr­ir­tækja voru nei­kvæðar um 6.449 millj­arða króna í árs­lok 2013 séu fjár­mála­fyr­ir­tæki í slita­með­ferð með­tal­in. Hreinar fjár­eignir fjár­mála­fyr­ir­tækja í slita­með­ferð voru nei­kvæðar um 6.485 millj­arða króna á sama tíma. Sé litið fram­hjá fjár­mála­fyr­ir­tækjum í slita­með­ferð voru hreinar fjár­eignir fjár­mála­fyr­ir­tækja jákvæðar um 36 millj­arða króna árið 2013. Hreinar fjár­eignir hins opin­bera og und­ir­geira þess voru nei­kvæðar um 973 millj­arða króna í árs­lok 2013 og höfðu skuldir umfram eignir auk­ist um 2,1% frá fyrra ári,“ segir til­kynn­ingu Hag­stofu Íslands.

Hreinar fjár­eignir heim­ila og félaga­sam­taka juk­ust um 7,9% milli ára og voru 2.487 millj­arðar króna í árs­lok 2013 sem jafn­gildir 132,2% af vergri lands­fram­leiðslu. Fjár­eignir þeirra námu 4.232 millj­örðum króna í árs­lok 2013, en stærstu fjár­eignir heim­ila eru líf­eyr­is­rétt­indi. Virði hluta­bréfa­eignar heim­ila og félaga­sam­taka dróst saman um 20,5% á milli áranna 2012 og 2013 og nam 190 millj­örðum króna í árs­lok 2013. Fjár­skuld­bind­ingar heim­ila og félaga­sam­taka voru 1.745 millj­arðar króna á sama tíma.

Heild­ar­fjár­eignir inn­lendra efna­hags­geira námu 24.122 millj­örðum króna í árs­lok 2013 en fjár­skuld­bind­ingar voru 31.682 millj­arðar króna á sama tíma. Fjár­eignir erlendra aðila á Íslandi námu 12.941 millj­örðum króna en fjár­skuld­bind­ingar við inn­lenda aðila voru 5.372 millj­arðar króna í árs­lok 2013. Hreinar fjár­eignir erlendra aðila á Íslandi voru í árs­lok 2013 7.569 millj­arðar króna og höfðu rýrnað um 8,2% frá fyrra ári.

Hag­stofa Íslands gefur nú út end­ur­skoð­aða fjár­mála­reikn­inga fyrir Ísland. Gögnin ná til stofn­stærða fjár­eigna og fjár­skuld­bind­inga allra efna­hags­geira íslenska hag­kerf­is­ins og eru flokkuð eftir þátt­tak­endum á fjár­mála­mark­aði (efna­hags­geirum) og fjár­mála­gern­ingum sam­kvæmt alþjóð­legum þjóð­hags­reikn­inga­stöðlum sem auð­veldar sam­an­burð á milli landa. Tímarað­irnar ná yfir árin 2003–2013.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None