Fjárkúgunarbréfið: Sigmundur sagður hafa beitt sér fyrir láni til Pressunnar frá MP banka

h_51921041-11.jpg
Auglýsing

Upp­lýs­ingar sem áttu að koma Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra illa, og hótað var að gera opin­berar í fjár­kúg­un­ar­bréfi sem stílað var á eig­in­konu hans, snér­ust um að Sig­mundur Davíð eða aðilar tengdir honum hafi haft aðkomu að því að Pressan ehf. hafi fengið lána­fyr­ir­greiðslu hjá MP banka. Aðal­eig­andi Pressunnar er Björn Ingi Hrafns­son. Frá þessu er greint á Vísi. 

Í umfjöllun mið­ils­ins er rætt við Arnar Ægis­son, fram­kvæmda­stjóra Pressunn­ar, um rúm­lega 60 milljón króna hækkun á skuldum félags­ins á árinu 2013. Þar segir hann að lík­lega sé um að ræða yfir­færslu á yfir­drætti sem var í eign­ar­halds­fé­lag­inu Vef­press­unni ehf. Hann stað­festir að yfir­drátt­ur­inn sé hjá MP banka.

Arnar hafnar hins vegar öllum tengslum Pressunnar við for­sæt­is­ráð­herra. Hann hafnar einnig að lána­fyr­ir­greiðsla MP banka hafi verið fengin að til­stillan Sig­mundar Dav­íðs eða aðilum tengdum hon­um.

Auglýsing

Systur reyna að kúga fé út úr for­sæt­is­ráð­herra



Í gær­morgun greind­i ­Vísir frá því að tvær konur hefðu verið hand­teknar fyrir að reyna að kúga fé út úr Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra. Kon­urnar heitar Hlín Ein­ars­dóttir og Malín Brand og eru syst­ur. Sam­kvæmt reifara­kenndri frá­sögn fjöl­miðla áttu þær að hafa sent hand­skrifað bréf heim til Sig­mundar Dav­íðs þar sem þess var kraf­ist að hann greiddi þeim nokkrar millj­ónir króna. Ann­ars myndu upp­lýs­ingar sem áttu að vera við­kvæmar fyrir hann að verða gerðar opin­ber­ar. Upp­haf­lega var greint frá því að upp­lýs­ing­arnar hafi snú­ast um fjár­hags­leg tengsl Sig­mundar Dav­íðs og Björns Inga Hrafns­son­ar, aðal­eig­anda og útgef­anda DV. Stundin sagði að upp­lýs­ing­arnar væri tölvu­póstur sem farið hefði á milli for­sæt­is­ráð­herra og Björns Inga í tengslum við kaupin á DV í fyrra. Upp­lýs­ing­arnar áttu því að tengja Sig­mund Davíð við kaup Björns Inga á DV.

Nýj­ustu fregnir herma hins vegar að þær upp­lýs­ingar snú­ist um að for­sæt­is­ráð­herr­ann eða aðilar tengdir honum hafi beitt sér fyrir því að Pressan ehf. fengi lána­fyr­ir­greiðslu hjá MP banka.

Málið var strax til­kynnt til lög­reglu sem réðst í umfangs­miklar aðgerðir sem leiddu til þess að syst­urnar voru hand­teknar í Hafn­ar­firði, sunnan Valla­hverf­is, á föstu­dag. Í fjár­kúg­un­ar­bréf­inu stóð að for­sæt­is­ráð­herra ætti að skilja pen­ing­ana sem þær vildu fá á þeim stað.

Í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kemur fram að þær hafa báðar játað verkn­að­inn við yfir­heyrslur og þeim sleppt að þeim lokn­um. Syst­urnar geta átt yfir höfði sér allt að sex ára fang­elsi fyrir fjár­kúg­un­ina sem þær hafa játað á sig.

Neita fjár­hags­legum tengslum



Björn Ingi Hrafns­son birti stöðu­upp­færslu á Face­book síð­degis í gær þar sem hann sagði Sig­mund Davíð ekki hafa fjár­magnað kaup Pressunnar á DV og að hann ætti ekki hlut í blað­inu. Þar sagði hann einnig: „Ég er harmi sleg­inn yfir fregnum dags­ins. Hugur minn er hjá þeim sem um sárt eiga að binda vegna þessa máls. For­sæt­is­ráð­herra fjár­magn­aði ekki kaup Pressunnar á DV. Hann á ekki hlut í blað­inu. Að öðru leyti óska ég eftir því að tekið sé til­lit til þess að hér er mann­legur harm­leikur á ferð­inni og að aðgát skuli höfð í nær­veru sál­ar.“

Sig­mundur Davíð sendi frá sér yfir­lýs­ingu um málið á sjötta tím­anum í gær. Þar segir hann m.a.: „­Vegna frétta sem birst hafa um málið í dag með vísan til hót­an­anna er rétt að taka fram að ég hef engin fjár­hags­leg tengsl við Björn Inga Hrafns­son, né hef ég komið að kaupum Vef­pressunnar á DV á nokkurn hátt.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None