Fjögurra prósenta atvinnuleysi í mars

14317521740_8a320556ce_z.jpg
Auglýsing

Atvinnu­leysi mæld­ist fjögur pró­sent í mars síð­ast­liðn­um, sem er 2,1 pró­sentu­stigi lægra en í sama mán­uði í fyrra þegar atvinnu­leysi mæld­ist 6,1 pró­sent. Í mars 2013 var 6,9 pró­sent atvinnu­leysi hér á landi.

Þetta kemur fram í nýjum tölum Hag­stofu Íslands. Sam­kvæmt rann­sókn­inni voru að jafn­aði 190.100 ein­stak­lingar á vinnu­mark­aði í mars, sem jafn­gildir 82 pró­senta atvinnu­þátt­töku. 182.400 þess­ara ein­stak­linga voru starf­andi og 7.700 voru í atvinnu­leit. Milli ára hefur starf­andi fólki fjölgað um 10.400 ein­stak­linga og atvinnu­lausum fækk­aði um 3.500 ein­stak­linga. Fólki sem stendur utan vinnu­mark­að­ar­ins fækk­aði líka, um 4.300 manns.

Atvinnu­leysi er meira meðal karla en kvenna, en 4.100 karlar eru án atvinnu, eða 4,2 pró­sent vinnu­afls. 3.500 konur eru atvinnu­laus­ar, eða 3,9 pró­sent. Fleiri karlar eru á vinnu­mark­aði en kon­ur, 95.300 karlar en 87.100 kon­ur. 24.600 konur eru utan vinnu­mark­að­ar­ins en 17.200 karl­ar.

Auglýsing

Þegar búið er að árs­tíða­leið­rétta atvinnu­leysis­töl­urnar er atvinnu­leysi 3,9 pró­sent. Fjöldi atvinnu­lausra sam­kvæmt árs­tíða­leið­rétt­ingu var 7.500 manns, sem er fækkun um 1.400 frá því í febr­ú­ar. Hlut­fall atvinnu­lausra fór því úr 4,6 pró­sentum í febr­úar í 3,9 í mars. Hag­stofan árs­tíða­leið­réttir alltaf tölur um atvinnu­leysi þar sem mæl­ingar sýna að íslenskur vinnu­mark­aður breyt­ist eftir mán­uð­um. Með því að leið­rétta er betur hægt að bera saman mán­uði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None