Fjórir forsætisráðherrar fengu ekki fálkaorðu, Jóhanna sagði nei takk

johanna1.jpg
Auglýsing

Allir for­sæt­is­ráð­herrar lýð­veld­is­sög­unnar hafa verið sæmdir fálka­orðu, nema fjór­ir. Þeir eru Her­mann Jón­as­son, Bene­dikt Grön­dal, Stein­grímur Her­mann­son og Jóhanna Sig­urð­ar­dótt­ir, sem hafn­aði því að fá stór­kross þegar hún sat sem for­sæt­is­ráð­herra á síð­asta kjör­tíma­bili.

Greint var frá því í morgun að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefði verið sæmdur stór­krossi hinnar íslensku fálka­orðu þann 13. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Ekki hefur verið greint frá veit­ing­unni ann­ars­staðar en á und­ir­síðu nefndar sem veitir fálka­orð­una á heima­síðu emb­ættis for­seta Íslands.

Sex manns sitja í orðu­nefnd fálka­orð­unn­ar. Guðni Ágústs­son, fyrrum for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er for­maður nefnd­ar­inn­ar.

Auglýsing

Fjórir hafa ekki fengið



Orðu­stig Hinnar íslensku fálka­orðu eru fimm tals­ins. Fyrsta stig orð­unnar er ridd­ara­kross­inn og eru flestir orðu­þegar sæmdir hon­um. Annað stig er stór­ridd­ara­kross, þriðja stig stór­ridd­ara­kross með stjörnu og fjórða stig er stór­kross. Æðsta stig fálka­orð­unnar er keðja ásamt stór­kross­stjörnu en hana bera ein­ungis þjóð­höfð­ingj­ar.

Flestir íslenskir for­sæt­is­ráð­herrar hafa verið sæmdir stór­krossi, sem er æðsta stig hennar sem aðrir en þjóð­höfð­ingjar geta bor­ið. Eftir leit í gagna­grunni heima­síðu For­seta Íslands komst Kjarn­inn að því að ein­ungis fjórir for­sæt­is­ráð­herrar hafa ekki fengið fálka­orðu. Þeir eru feðgarnir Her­mann Jón­as­son (for­sæt­is­ráð­herra frá 1956-1958), Bene­dikt Grön­dal (for­sæt­is­ráð­herra frá októ­ber 1979 til febr­úar 1980), Stein­grímur Her­manns­son (for­sæt­is­ráð­herra 1983-1987 og 1988-1991) og Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir (for­sæt­is­ráð­herra frá 2009-2013).

Jóhanna var til­nefnd til orðu­veit­ingar en hún hafn­aði því að taka við henni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None