Um 91 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í maí síðastliðnum, samkvæmt talningu Ferðmálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Það eru 24.300 fleiri en í maí 2014. Aukningin nemur 36,4 prósentum milli ára.
Tæplega þrír af hverjum fjórum ferðamönnum í maí árið 2015 voru af tíu þjóðernum. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir eða 22,3 prósent af heildarfjölda en næstir komu Bretar en þeir mældust 11,8 prósent af heildarfjölda. Þar á eftir fylgdu Þjóðverjar (7,4%), Norðmenn (6,5%), Svíar (5,7%), Frakkar (5,1%), Kanadamenn (4,9%), Danir (4,4%), Hollendingar (2,8%) og Pólverjar (2,7%).
Af einstaka þjóðernum fjölgaði Bandaríkjamönnum, Bretum, Þjóðverjum og Kínverjum mest milli ára í maí en 8.772 fleiri Bandaríkjamenn komu í maí í ár en í fyrra, 2.437 fleiri Bretar, 1.949 fleiri Þjóðverjar og 1.048 fleiri Kínverjar. Þessar fjórar þjóðir báru uppi um 58% aukningu ferðamanna í maí.
Frá áramótum hafa alls um 379 þúsund ferðamenn farið frá landinu, eða 88.550 fleiri en á sama tímabili í fyrra. Aukningin milli ára nemur 30,4 prósentum.