Fleiri Íslendingar andvígir upptöku evru en hlynntir henni

evrur-1.jpg
Auglýsing

44,6 pró­sent Íslend­inga eru mjög eða frekar and­vígir því aðevra verði tekin upp sem gjald­mið­ill á Íslandi en 37,8 pró­sent eru mjög eða frekar hlynnt því. 17,5 pró­sent segj­ast hvorki vera and­vígir né hlynntir upp­töku evr­u. Af þeim sem taka afstöðu segj­ast 54 pró­sent vera á móti upp­töku evru en 46 pró­sent fylgj­andi. Þetta er nið­ur­staða könn­unar sem Gallup gerði fyrir Við­skipta­blaðið og það greinir frá í dag.

Mik­ill munur er á afstöðu Íslend­inga til upp­töku evru eftir því hvaða flokk við­kom­andi kýs. Þannig voru ein­ungis 15 pró­sent Sjálf­stæð­is­manna og 18 pró­sent Fram­sókn­ar­manna hlynntir upp­töku evru. Stuðn­ings­menn Sam­fylk­ingar (81 pró­sent) og Bjartrar fram­tíðar (80 pró­sent) eru hins vegar mest fylgj­andi upp­töku hennar sem gjald­mið­ils á Íslandi. Um 43 pró­sent þeirra sem kjósa Vinstri græna eru fylgj­andi upp­töku evru og 53 pró­sent stuðn­ings­manna Pírata, þess flokks sem mælist með lang­mest fylgi í skoð­ana­könn­unum.

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins (um 75 pró­sent) og Fram­sókn­ar­flokks­ins (71 pró­sent) er and­víg­astir upp­töku evru en ein­ungis þrjú pró­sent stuðn­ings­manna Sam­fylk­ingar og tíu pró­sent stuðn­ings­manna Bjartrar fram­tíðar eru á móti. Þá segj­ast 27 pró­sent þeirra sem ætla að kjósa Pírata vera and­vígir upp­töku evru og 42 pró­sent stuðn­ings­manna Vinstri grænna.

Auglýsing

Konur eru and­snún­ari upp­töku evru en karl­ar, sam­kvæmt könn­un­inni. Um 54 pró­sent þeirra vilja ekki taka hana upp sem mynt en 36 pró­sent karla eru á móti því.

Könnun Við­skipta­blaðs­ins var fram­kvæmd af Gallup á tíma­bil­inu 23. sept­em­ber til 5. októ­ber síð­ast­lið­ins. Í úrtak­inu voru 1.423 manns og fjöldi svar­enda í könn­un­inni var 859. Þátt­töku­hlut­fallið var því 60,4 pró­sent. Þar af voru 795 sem tóku afstöðu. Spurt var: Ertu hlynnt(­ur) eða and­víg(­ur) upp­töku evru sem gjald­mið­ils á Íslandi?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None