Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra er sá ráðherra sem nýtur mests trausts meðal landsmanna en fæstir treysta Jóni Gunnarssyni, dómsmálaráðherra.
Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR á trausti til ráðherra í ríkisstjórn Íslands.
Fram kemur hjá MMR að nokkurn mun megi sjá á trausti til ráðherra eftir flokkslínum en ráðherrar Framsóknarflokksins njóta meira trausts og minna vantrausts en allir aðrir ráðherrar, að forsætisráðherra undanskildum. Þá mældust ráðherrar Sjálfstæðisflokksins með meira vantraust en ráðherrar annarra ríkisstjórnarflokka.
Konur treysa Katrínu betur
Karlar reyndust líklegri til að segjast bera mjög eða frekar mikið traust til Sigurðar Inga Jóhannssonar, eða 56 prósent, og Willum Þórs Þórssonar, eða 53 prósent, heldur en konur en konur voru öllu líklegri en karlar til að lýsa trausti til Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra.
Traust til ráðherra reyndist almennt hærra hjá eldri svarendum en þeim yngri og mátti greina aukið traust til Ásmundar Einars Daðasonar, Sigurðar Inga og Willum Þórs með auknum aldri svarenda. Þá reyndust svarendur 68 ára og eldri líklegri til að lýsa trausti til Katrínar Jakobsdóttur en lítill munur reyndist á trausti til Lilju Alfreðsdóttur eftir aldri.
Traust til Ásmundar Einars mælist hátt þvert á flokka
Nokkurn mun má sjá eftir stjórnmálaskoðunum svarenda, að því er fram kemur hjá MMR. Traust til Ásmundar Einars Daðasonar mældist hátt þvert á flokka en yfir 70 prósent stuðningsfólks ríkisstjórnarflokkanna og um helmingur stuðningsfólks Samfylkingarinnar, Pírata, Viðreisnar og Flokks fólksins kváðust bera frekar eða mjög mikið traust til hans.
Katrín Jakobsdóttir mældist með nær algjöran stuðning meðal stuðningsfólks Vinstri grænna en 96 prósent þeirra kváðust bera mikið traust til forsætisráðherrans. Katrín naut einnig mikils stuðnings meðal stuðningsfólks hinna ríkisstjórnarflokkanna en rúmlega þrír fjórðu hlutar stuðningsfólks Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins kváðust bera mikið traust til hennar, sem og um helmingur stuðningsfólks Samfylkingarinnar og Viðreisnar. Traust til Sigurðar Inga Jóhannssonar og Lilju Alfreðsdóttur mældist einnig mest meðal stuðningsfólks ríkisstjórnarflokkanna en minna hjá stuðningsfólki annarra flokka en traust til Willums Þórs Þórssonar mældist mest meðal stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Miðflokksins.
Stuðningsfólk ríkisstjórnarflokkanna vantreystir Jóni
Hátt hlutfall stuðningsfólks ríkisstjórnarflokkanna lýsir vantrausti til Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra en helmingur stuðningsfólks Vinstri grænna, þriðjungur stuðningsfólks Framsóknar og fjórðungur stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins kvaðst bera frekar eða mjög lítið traust til dómsmálaráðherrans.
Þá kvaðst um helmingur stuðningsfólks Vinstri grænna og fjórðungur stuðningsfólks Framsóknar bera lítið traust til Bjarna Benediktssonar og rúmur helmingur stuðningsfólks Vinstri grænna og þriðjungur stuðningsfólks Framsóknar lýsti vantrausti á Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur.
Könnunin var framkvæmd dagana 29. nóvember til 2. desember 2021 og var heildarfjöldi svarenda 933 einstaklingar, 18 ára og eldri.