Flestir treysta Ásmundi Einari og fæstir Jóni Gunnarssyni

Nokkurn mun má sjá á trausti landsmanna til ráðherra eftir flokkslínum, samkvæmt könnun MMR, en ráðherrar Framsóknarflokksins njóta meira trausts og minna vantrausts en allir aðrir ráðherrar, að forsætisráðherra undanskildum.

Ásmundur Einar Daðason
Ásmundur Einar Daðason
Auglýsing

Ásmundur Einar Daða­son mennta- og barna­mála­ráð­herra er sá ráð­herra sem nýtur mests trausts meðal lands­manna en fæstir treysta Jóni Gunn­ars­syni, dóms­mála­ráð­herra.

Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR á trausti til ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands.

Fram kemur hjá MMR að nokkurn mun megi sjá á trausti til ráð­herra eftir flokkslínum en ráð­herrar Fram­sókn­ar­flokks­ins njóta meira trausts og minna van­trausts en allir aðrir ráð­herr­ar, að for­sæt­is­ráð­herra und­an­skild­um. Þá mæld­ust ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins með meira van­traust en ráð­herrar ann­arra rík­is­stjórn­ar­flokka.

Auglýsing

Konur treysa Katrínu betur

Karlar reynd­ust lík­legri til að segj­ast bera mjög eða frekar mikið traust til Sig­urðar Inga Jóhanns­son­ar, eða 56 pró­sent, og Willum Þórs Þórs­son­ar, eða 53 pró­sent, heldur en konur en konur voru öllu lík­legri en karlar til að lýsa trausti til Katrínar Jak­obs­dótt­ur, for­sæt­is­ráð­herra.

Traust til ráð­herra reynd­ist almennt hærra hjá eldri svar­endum en þeim yngri og mátti greina aukið traust til Ásmundar Ein­ars Daða­son­ar, Sig­urðar Inga og Willum Þórs með auknum aldri svar­enda. Þá reynd­ust svar­endur 68 ára og eldri lík­legri til að lýsa trausti til Katrínar Jak­obs­dóttur en lít­ill munur reynd­ist á trausti til Lilju Alfreðs­dóttur eftir aldri.

Mynd: MMR

Traust til Ásmundar Ein­ars mælist hátt þvert á flokka

Nokkurn mun má sjá eftir stjórn­mála­skoð­unum svar­enda, að því er fram kemur hjá MMR. Traust til Ásmundar Ein­ars Daða­sonar mæld­ist hátt þvert á flokka en yfir 70 pró­sent stuðn­ings­fólks rík­is­stjórn­ar­flokk­anna og um helm­ingur stuðn­ings­fólks Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, Pírata, Við­reisnar og Flokks fólks­ins kváð­ust bera frekar eða mjög mikið traust til hans.

Katrín Jak­obs­dóttir mæld­ist með nær algjöran stuðn­ing meðal stuðn­ings­fólks Vinstri grænna en 96 pró­sent þeirra kváð­ust bera mikið traust til for­sæt­is­ráð­herr­ans. Katrín naut einnig mik­ils stuðn­ings meðal stuðn­ings­fólks hinna rík­is­stjórn­ar­flokk­anna en rúm­lega þrír fjórðu hlutar stuðn­ings­fólks Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins kváð­ust bera mikið traust til henn­ar, sem og um helm­ingur stuðn­ings­fólks Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisn­ar. Traust til Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar og Lilju Alfreðs­dóttur mæld­ist einnig mest meðal stuðn­ings­fólks rík­is­stjórn­ar­flokk­anna en minna hjá stuðn­ings­fólki ann­arra flokka en traust til Will­ums Þórs Þórs­sonar mæld­ist mest meðal stuðn­ings­fólks Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Fram­sóknar og Mið­flokks­ins.

Fæstir treysta Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra Mynd: Birgir Þór

Stuðn­ings­fólk rík­is­stjórn­ar­flokk­anna van­treystir Jóni

Hátt hlut­fall stuðn­ings­fólks rík­is­stjórn­ar­flokk­anna lýsir van­trausti til Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra en helm­ingur stuðn­ings­fólks Vinstri grænna, þriðj­ungur stuðn­ings­fólks Fram­sóknar og fjórð­ungur stuðn­ings­fólks Sjálf­stæð­is­flokks­ins kvaðst bera frekar eða mjög lítið traust til dóms­mála­ráð­herr­ans.

Þá kvaðst um helm­ingur stuðn­ings­fólks Vinstri grænna og fjórð­ungur stuðn­ings­fólks Fram­sóknar bera lítið traust til Bjarna Bene­dikts­sonar og rúmur helm­ingur stuðn­ings­fólks Vinstri grænna og þriðj­ungur stuðn­ings­fólks Fram­sóknar lýsti van­trausti á Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur.

Könn­unin var fram­kvæmd dag­ana 29. nóv­em­ber til 2. des­em­ber 2021 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 933 ein­stak­ling­ar, 18 ára og eldri.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent