Tekjur Flokks fólksins voru 62,2 milljónir króna á árinu 2020. Alls komu 98 prósent þeirra til vegna framlaga frá ríkissjóði og Alþingi. Um 1,1 milljón króna var framlag frá Reykjavíkurborg, þar sem flokkurinn á borgarfulltrúa, og 87 þúsund krónur skiluðu sér í formi félagsgjalda. Það er um 30 prósent þeirrar upphæðar sem félagsgjöld skiluðu árið 2019.
Kostnaður Flokks fólksins jókst umtalsvert á síðasta ári, eða um rúmlega 50 prósent. Þar skipti mestu að launakostnaður jókst um 65 prósent og var 17 milljónir króna, og að auglýsinga- og kynningarkostnaður fór úr 1,7 milljón króna í 8,1 milljón króna. Hann tæplega fimmfaldaðist. Alls var fjöldi ársverka hjá flokknum 1,6 á síðasta ári.
Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi Flokks fólksins sem skilað var inn til Ríkisendurskoðunar fyrir skemmstu. Flokkurinn var minnstur stjórnmálaflokka á þingi á síðasta kjörtímabili. Eftir að tveir þingmenn hans voru reknir úr flokknum í lok árs 2018 voru tveir í þingflokknum. Flokkur fólksins styrkti hins vegar stöðu sína í síðustu kosningum, fékk 8,8 prósent atkvæða og sex menn kjörna. Því munu framlög til flokksins aukast á þessu kjörtímabili enda segir atkvæðamagnið til um hversu háa fjárhæð flokkar fá úthlutað úr ríkissjóði.
Hagnaður alls 99 milljónir króna á þremur árum
Hagnaður Flokks fólksins var 29,4 milljónir króna á síðasta ári sem þýðir að tæplega helmingur af tekjum hans endaði sem hagnaður. Einungis þurfti að nota 53 prósent af framlögum hins opinberra til flokksins til að standa undir rekstri hans.
Á þeim þremur árum síðasta kjörtímabils sem ársreikningar Flokks fólksins liggja fyrir hagnaðist flokkurinn því samtals um 99 milljónir króna.
Óráðstafað eigið fé Flokks fólksins um síðustu áramót var 93,4 milljónir króna. Það var 21,8 milljónir króna í lok árs 2018. Félagið á engar aðrar eignir en það fé og skuldaði nánast ekkert, eða 1,2 milljónir króna í skammtímaskuldir. Eigið féð var því 93,4 milljónir króna í lok árs 2020.
Framlög til flokka úr ríkissjóði hækkuð gríðarlega
Framlög til stjórnmálaflokka úr ríkissjóði voru hækkuð verulega í byrjun síðasta kjörtímabils. Tillaga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka framlag ríkisins til stjórnmálaflokka á árinu 2018 um 127 prósent var samþykkt í fjárlögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok desember 2017. Framlög til stjórnmálaflokka á því ári áttu að vera 286 milljónir króna en urðu 648 milljónir króna.
Kjarninn greindi frá því í síðustu viku að þeir níu stjórnmálaflokkar sem fengu nægjanlegt fylgi í síðustu þingkosningum til að fá úthlutað fjármunum úr ríkissjóði fá samtals 728,2 milljónir króna til að skipta á milli sín á næsta ári.
Um er að ræða þá átta flokka sem eiga fulltrúa á þingi auk Sósíalistaflokks Íslands sem hlaut nægjanlegt fylgi í síðustu kosningum til að hljóta framlag.
Það er sama upphæð og flokkarnir fengu samtals í fyrra og sama upphæð og þeir fengu í ár. Raunar gera áætlanir stjórnvalda ráð fyrir því að hún haldist óbreytt út árið 2024. Haldi það munu stjórnmálaflokkar landsins alls hafa fengið 3.641 milljónir króna úr ríkissjóði á fimm ára tímabili.
Til viðbótar við þær greiðslur er kostnaður vegna starfsmanna þingflokka greiddur af Alþingi.
Ársreikningar nú birtir í heild
Fulltrúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex formenn stjórnmálaflokka, lögðu svo sameiginlega fram frumvarp til að breyta lögum um fjármál stjórnmálaflokka og frambjóðenda í lok árs 2018. Það var afgreitt sem lög fyrir þinglok þess árs.
Á meðal breytinga sem það stuðlaði að var að leyfa stjórnmálaflokkum að taka á móti hærri framlögum frá fyrirtækjum og einstaklingum. Hámarksframlag var 400 þúsund krónur en var breytt í 550 þúsund krónur.
Auk þess var sú fjárhæð sem einstaklingur þarf að gefa til að vera nafngreindur í ársreikningum viðkomandi flokka eða frambjóðenda sé hækkuð úr 200 þúsund krónum í 300 þúsund krónur.
Þá var ákveðið að láta stjórnmálaflokkanna skila ársreikningum sínum til ríkisendurskoðanda fyrir 1. nóvember ár hvert í stað 1. október líkt og áður var. Sú grundvallarbreyting fylgdi með að Ríkisendurskoðun hætti að birta takmarkaðar upplýsingar úr reikningum flokkanna, svokallaðan útdrátt, og átti þess í stað að birta ársreikninganna í heild sinni áritaða af endurskoðendum.
Þrátt fyrir að lögin hafi tekið gildi í byrjun árs 2019 þurftu flokkarnir þó ekki að sæta því að ársreikningar þeirra væru birtir í heild á árinu 2019. Þeirri framkvæmd var frestað fram á haustið 2020. Því eru ársreikningarnir nú að birtast í annað sinn í heild sinni.
Sem stendur hefur Ríkisendurskoðun ekki birt ársreikninga eins flokks, Pírata, vegna síðasta árs. Kjarninn mun fjalla um ársreikninga allra þeirra flokka sem skilað hafa ársreikningi á næstu dögum.